Háskólinn á Akureyri

Nýnemadagar Dagana 24. - 27. ágúst 2010 eru nýnemadagar í Háskólanum á Akureyri. Dagarnir eru

Nýnemadagar

NýnemarDagana 24. - 27. ágúst 2010 eru nýnemadagar í Háskólanum á Akureyri. Dagarnir eru tileinkaðir nýnemum, bæði fjar- og staðarnemendum og fela í sér ýmis konar hagnýta  fræðslu. En helstu markmið nýnemadaga eru:

 

  • Að bjóða nýnema velkomna til starfa í HA, gefa þeim tækifæri á að kynnast hver öðrum og efla liðsandann.
  • Að gefa nýnemum tækifæri á að kynnast starfsfólki háskólans og stoðþjónustu í upphafi náms.
  • Að kynna tölvuumhverfi, prófareglur, bókasafn, námsráðgjöf, alþjóðasamstarf o.fl. fyrir nýnemum.
  • Að gera grein fyrir almennum væntingum HA til nýnema

Dagskrá nýnemadaga kemur fram í stundaskrá hvers og eins en dagarnir hefjast þriðjudaginn 24. ágúst. Nýnemar mæta til nýnemadaga á mismunandi tímum eftir því á hvaða sviði þeir eru. Nýnemar á:

· Hug- og félagsvísindasviði mæta þriðjudaginn 24. ágúst kl. 9.05 í stofu N101

· Heilbrigðisvísindasviði mæta miðvikudaginn 25. ágúst kl. 9.05 í stofu N101

· Viðskipta- og raunvísindasviði mæta fimmtudaginn 26. ágúst kl. 9.05 í stofu N101

Nýnemar eru hvattir til ef þeir hafa kost á að mæta með fartölvur.

Til að sjá nánari stundarskrá þarf  að skrá sig inn á Stefaníu.  Nemendur komast inn á eigin síður í Stefaníu með því að velja hnappinn Innskráning  hér á heimasíðu háskólans og skrá þar inn kennitölu sína og skólanúmer.

 Mikilvægar upplýsingar fyrir  nýnema, smellið hér.

Upplýsingar um innskráningu fengu allir nýir nemendur sendar heim til sín fyrr í sumar. Ef upplýsingarnar finnast ekki má hafa samband við skrifstofu háskólans í síma 460-8000.

Háskólinn á Akureyri býður nýnema hjartanlega velkomna. 



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Lára Kristín Jónsdóttir

„Ástćđan fyrir ţví ađ ég kaus ađ leggja stund á nám í hjúkrunarfrćđi er sú ađ mér finnst hjúkrun vera heillandi starf sem opnar fjölmargar dyr. “

Lára Kristín Jónsdóttir hjúkrunarfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf