Tímaritið Uppeldi og menntun, seinna hefti 2009 er komið út, með nýju og
spennandi efni. Fyrstu tvær greinarnar fjalla um forvarnir og meðferð við hegðunarerfiðleikum barna: Anna Björnsdóttir og Margrét Sigmarsdóttir
skrifa um PMTO-aðferðina og áhrif hennar á hegðunarerfiðleika barna í Hafnarfirði og Sigurborg K. Kristjánsdóttir og Rúnar
Sigþórsson fjalla um innleiðingu PMT-verkfæra með starfendarannsókn í leikskóla í greininni „Svona gerum við“ .
Kristín Loftsdóttir skrifar grein um Margbreytileika og fjölmenningarlegt samfélag í námsbókum, en hér fjallar hún um sýn
aðalnámskrár grunnskóla og gátlista Námsgagnastofnunar á þessu sviði.
Af hverju vissi ég ekkert um Jón Þórarinsson!, kallar Ingvar Sigurgeirsson grein sína um rit Lofts Guttormssonar og félaga, Almenningsfræðsla á Íslandi 1880-2007. Súsanna Margrét Gestsdóttir fjallar um sama rit í grein sem kallast einfaldlega: Almenningsfræðsla á Íslandi 1880-2007.
Ritstjóri er Hanna Ragnarsdóttir, dósent á Menntavísindasviði HÍ. Uppeldi og menntun er gefið út tvisvar á ári af Menntavísindasviði Háskóla Íslands í samvinnu við Háskólann á Akureyri.
Hægt er að panta ritið og/eða áskrift í síma 525 5980, netfang mvs-simennt@hi.is. Ritið er einnig fáanlegt í Bóksölu kennaranema v/Stakkahlíð, Bóksölu Stúdenta Háskólatorgi, Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi og Pennanum-Eymundssyni, Akureyri.



