Laugardaginn 6. febrúar mun rannsóknarhópur við Háskólann á
Akureyri kynna niðurstöður rannsóknar á samfélagslegum áhrifum Héðinsfjarðarganga á ráðstefnu í
Ráðhúsinu á Siglufirði. Ráðstefnan stendur frá 13:00 til 17:00.
Með opnun Héðinsfjarðarganga haustið 2010 munu samgöngur á norðanverðum Tröllaskaga gjörbreytast og í kjölfarið má
búast við margvíslegum breytingum á mannfjöldaþróun, efnahagslífi, opinberri þjónustu, menningu og félagslegum tengslum í
Fjallabyggð.
Rannsóknahópur við Háskólann á Akureyri hefur undanfarið ár unnið að margþættri rannsókn á þessum áhrifum með styrk frá Rannsóknasjóði Vegagerðarinnar. Fyrsti áfangi rannsóknarinnar hefur beinst að samgöngum og samfélagi Fjallabyggðar fyrir opnun Héðinsfjarðarganga og verða niðurstöður hans kynntar á opinni ráðstefnu í Ráðhúsinu á Siglufirði laugardaginn 6. febrúar næstkomandi. Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér.



