Háskólinn á Akureyri

Símenntun: Börn međ hreyfihömlun - ţátttaka í leikskólastarfi Símenntun HA kynnir námskeiðið Börn með hreyfihömlun -

Símenntun: Börn međ hreyfihömlun - ţátttaka í leikskólastarfi

Símenntun HASímenntun HA kynnir námskeiðið Börn með hreyfihömlun - þátttaka í leikskólastarfi sem fer fram fimmtudaginn 25. febrúar kl. 9:15- 15:15. Námskeiðið er í samstarfi við Greininga- og ráðgjafastöð ríkisins.

Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa með börnum með hreyfihömlun í leikskólum, þeim sem starfa við snemmtæka íhlutun í leikskólum, aðstandendum barnanna og öðrum sem hafa áhuga.

Markmið
Efla þekkingu á þörfum barna með hreyfihömlun og auka færni í framkvæmd íhlutunar í leikskóla. Auka þannig gæði þeirrar þjónustu sem börnum með hreyfihamlanir og fjölskyldum þeirra er veitt. Skapa vettvang fyrir fólk sem vinnur að sambærilegum verkefnum og getur miðlað reynslu og upplýsingum sín á milli.

Efni og vinnulag
Á námskeiðinu verður megináhersla lögð á hagnýt vinnubrögð ásamt fræðilegum upplýsingum. Fjallað verður um snemmtæka íhlutun fyrir börn með hreyfihömlun og hvernig við getum aðlagað þjálfun hreyfihamlaða barnsins að daglegu starfi í leikskóla og daglegt líf að þjálfun barnsins.

Lögð verður áhersla á virkni og tengsl við önnur börn og hvað við getum gert til að efla þátttöku, sjálfstæði og frumkvæði og komið í veg fyrir áunnið hjálparleysi.

Kennarar
Sigrún Grendal Magnúsdóttir, talmeinafræðingur
Björk Steingrímsdóttir, iðjuþjálfi
Þóranna Halldórsdóttir, þroskaþjálfi

Tími:  Fim.25. feb. kl. 9:15-15:15
Staður: fjarkennsla frá Greiningastöð til stofur K-109 Sólborgar HA
Verð: 14.400 kr./foreldrar 3.600 kr.



Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Alma Kristín Gísladóttir

„Ţađ kom aldrei neitt annađ til greina en ađ fara í HA. Námiđ er spennandi og opnar ýmsa möguleika til framtíđar. “

Alma Kristín Gísladóttir nemandi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf