Háskólinn á Akureyri

Símenntun: Hugræn atferlismeðferð - Samtalstækni Símenntun HA kynnir námskeiðið Hugræn atferlismeðferð –

Símenntun: Hugræn atferlismeðferð - Samtalstækni

Símenntun HASímenntun HA kynnir námskeiðið Hugræn atferlismeðferð – samtalstækni sem haldið verður dagana 18.-19. mars kl. 9:00 - 16:00. Námskeiðið er haldið í samstarfi við geðsvið Landspítala.

Námskeiðið er ætlað fagfólki í heilbrigðisþjónustu. Markmiðið er að fagfólk á heilbrigðissviði geti aukið færni sína í viðtölum við notendur þjónustunnar með því að styðjast við gagnreyndar aðferðir og þannig uppfylla kröfur um hagkvæmni og árangur.

Farið verður í aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar sem eru notaðar í viðtölum: Uppbygging viðtals, undirstöðuatriði í hugrænni atferlismeðferð, að skilja og skilgreina vanda (cognitive formulation), notkun Sókratískrar samtalstækni, viðhorf sem hafa áhrif á samtalið, verkefni, æfingar, handleiðsla.

Kennari: Dr. Agnes Agnarsdóttir, sálfræðingur á geðsviði Landspítala
Tími: Fim. 18. og fös. 19. mars kl. 9:00-16:00
Staður: Sólborg - Háskólinn á Akureyri
Verð: 28.900 kr.

Munið  niðurgreiðslur á námskeiðskostnaði hjá  starfsmenntasjóðum stéttarfélaganna,  allt að 75% af heildarkostnaði
Nánari upplýsingar og skráning í síma 4608091; 4608090

Veffang:www.unak.is//
Netfang:simennt@unak.is

 

 

Símenntun HA kynnir námskeiðið, Hugræn atferlismeðferð – samtalstækni sem haldið verður dagana 18.-19. mars kl 9-16. Námskeiðið er haldið í samstarfi við geðsvið Landspítala.


Nemendur

Starfsmenn

Á næstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Elísabet Þórunn Jónsdóttir

„Þjónustan á bókasafni HA er hreint út sagt frábær! Framboðið er til fyrirmyndar og starfsfólkið hjálpsamt.“

Elísabet Þórunn Jónsdóttir nemandi í félagsvísindum
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf