Símenntun HA kynnir námskeiðið Hugarkort sem fram fer þriðjudaginn 15. febrúar kl. 14:30 - 18:00. Hugarkort er
verkfæri sem kennarar geta notað til að auðvelda vinnu sína. Þau geta t.d. nýst kennurum við undirbúning fyrir kennslu, gerð
kennsluáætlana, eflt og dýpkað skilning á náms- og kennsluefni, leið til að greina og meta ákveðin viðfangsefni, til þess að
þróa hugmyndir, skapa nýja þekkingu og víkka sjóndeildarhringinn. Með hugarkortum getur maður tjáð sig á skipulegan hátt
með orðum, táknum, litum, merkjamáli o.fl.
Námskeiðið er ætlað kennurum á öllum skólastigum sem hafa áhuga á að læra hvernig hægt er með myndrænum hætti að skipuleggja hugsun sína og þekkingu á hagnýtan, árangursríkan og skemmtilegan hátt.
Markmið: Að öðlast leikni í gerð hugarkorta og geta nýtt sér þau við dagsins önn.
Efni og vinnulag: Nemendur læra að gera hugarkort í Mindmeister sem er frír hugbúnaður til hugarkortagerðar á netinu. Fyrri hluti námskeiðsins fer fram með kynningu á hugbúnaðinum, möguleikum hans og gagnsemi fyrir dagleg störf. Seinni hluti námskeiðsins felst í hagnýtri verkefnavinnu/námssmiðju þar sem kennari býr til sitt eigið hugarkort út frá t.d. námskrá eða tilteknu viðfangsefni sem hann hefur sérstakan áhuga á að setja upp í hugarkort.
Kennari : Sólveig Zophoníasdóttir, B.ed í upplýsingatækni og miðlun
Tími: Þriðjudaginn 15. febrúar, kl 14:30-18.
Verð: 9.900 kr.
Staður: Háskólinn á Akureyri, Sólborg.
Munið niðurgreiðslur á námskeiðskostnaði hjá starfsmenntasjóðum stéttarfélaganna, allt að 75% af heildarkostnaði
Nánari upplýsingar og skráning í síma 4608091; 4608090
Veffang: http://www.unak.is//
Netfang:simennt@unak.is



