Háskólinn á Akureyri

Símenntun HA: Námskeiđiđ Hugarkort Símenntun HA kynnir námskeiðið Hugarkort sem fram fer þriðjudaginn 2. febrúar

Símenntun HA: Námskeiđiđ Hugarkort

Símenntun HASímenntun HA kynnir námskeiðið Hugarkort sem fram fer þriðjudaginn 2. febrúar kl. 14:30 - 18:00. Hugarkort er verkfæri sem kennarar geta notað til að auðvelda vinnu sína. Þau geta t.d. nýst kennurum við undirbúning fyrir kennslu, gerð kennsluáætlana, eflt og dýpkað skilning á náms- og kennsluefni, leið til að greina og meta ákveðin viðfangsefni, til þess að þróa hugmyndir, skapa nýja þekkingu og víkka sjóndeildarhringinn. Með hugarkortum getur maður tjáð sig á skipulegan hátt með orðum, táknum, litum, merkjamáli o.fl.

Námskeiðið er ætlað kennurum á öllum skólastigum sem hafa áhuga á að læra hvernig hægt er með myndrænum hætti að skipuleggja hugsun sína og þekkingu á hagnýtan, árangursríkan og skemmtilegan hátt.

Markmið: Að öðlast leikni í gerð hugarkorta og geta nýtt sér þau við dagsins önn.

Efni og vinnulag: Nemendur læra að gera hugarkort í Mindmeister sem er frír hugbúnaður til hugarkortagerðar á netinu. Fyrri hluti námskeiðsins fer fram með kynningu á hugbúnaðinum, möguleikum hans og  gagnsemi fyrir dagleg störf. Seinni hluti námskeiðsins felst í hagnýtri verkefnavinnu/námssmiðju þar sem kennari býr til sitt eigið hugarkort út frá t.d. námskrá eða tilteknu viðfangsefni sem hann hefur sérstakan áhuga á að setja upp í hugarkort.

Kennari : Sólveig Zophoníasdóttir, B.ed í upplýsingatækni og miðlun

Tími: Þriðjudaginn 2. febrúar, kl 14:30-18.
Verð: 9.900 kr.
Staður: Háskólinn á Akureyri, Sólborg.

Munið  niðurgreiðslur á námskeiðskostnaði hjá  starfsmenntasjóðum stéttarfélaganna,  allt að 75% af heildarkostnaði

Nánari upplýsingar og skráning í síma 4608091; 4608090

Veffang: http://www.unak.is//
Netfang:simennt@unak.is



Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Áslaug Karen Jóhannsdóttir

„Fjölmiđlafrćđin er ný og spennandi námsgrein og ţess vegna valdi ég hana.“

Áslaug Karen Jóhannsdóttir blađamađur á Skessuhorni
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf