Starfsfólk við Háskólann á Akureyri tók þátt í átakinu Hjólað
í vinnuna af miklum krafti. Innan háskólans voru 7 lið. „Það var hugur í fólki, mikil samstaða ríkti og fólk er
staðráðið í að taka þátt aftur að ári, keppni sem sannarlega eflir alhliða vellíðan“ segir Hugrún Helgadóttir
verkefnastjóri launa- og starfsmannamála.
Alls tók 61 starfsmaður við Háskólann á Akureyri þátt í átakinu. Það lið sem var hlutskarpast í fjölda daga á hvern þátttakenda var Steinasafnið (10 dagar á hvern þátttakenda, alls 100 dagar). Það lið sem hinsvegar hjólaði lengst (541 km.) var Þór og Freyja en þess má geta að rektor háskólans Stefán B. Sigurðsson var í því liði.
Á myndinni frá vinstri eru: Jónas Steingrímsson framkvæmdastjóri FÉSTA, Jónína Sturludóttir og Agnes Eyfjörð verkefnastjórar á fjármálasviði en þau voru í liðinu sem hjólaði lengst.



