Háskólinn á Akureyri

Stjórnun og forysta í ferđaţjónustu: Nýtt nám hjá Símenntun HA Námið er sett upp í samvinnu við Opna Háskólann

Stjórnun og forysta í ferđaţjónustu: Nýtt nám hjá Símenntun HA

Símenntun HANámið er sett upp í samvinnu við Opna Háskólann í HR og Samtök ferðaþjónustunnar. Þetta er í þriðja sinn sem námið verður kennt hjá Opna Háskólanum í HR en nú verður boðið upp á námið í fyrsta sinn hjá Símenntun HA.

Markmið námsins er að efla almenna stjórnunar- og leiðtogahæfni þátttakenda. Veita stjórnendum betri skilning á eigin stjórnunarstíl. Kynna hagnýtar og sannreyndar aðferðir og vinnubrögð sem ýta undir stjórnunarlegan árangur. Skapa sameiginlegan vettvang til tengslamyndunar milli stjórnenda í ferðaþjónustu.

Námið hefst í október og stendur til febrúar. Engin kennsla verður í desember.
Kennt er einu sinni í mánuði, einn, eða einn og hálfan, dag í senn.
Nánari upplýsingar um dagsetningar á kennslu verða auglýstar innan skamms.

Allir leiðbeinendur í náminu eru viðurkenndir sérfræðingar á viðkomandi sviði með víðtæka reynslu af stjórnendafræðslu og ráðgjöf.

Nánari upplýsingar um námið má finna hér, á vef Símenntunar HA.

 

 



Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Hjörtur Ágústsson

„Ég flutti frá Reykjavík til Akureyrar til ađ stunda nám í nútímafrćđi. Námiđ var lćrdómsríkt ekki síst ferđ mín til Indlands í skiptinám. “

Hjörtur Ágústsson kynningarfulltrúi hjá Evrópu unga fólksins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf