Stofnfundur Barnabókaseturs við Háskólann á Akureyri sl. laugardag gekk vonum framar. Fjöldi
fólks lagði leið sína í Amtsbókasafnið þar sem boðið var upp á notalega fjölskyldustund með samverugraut og upplestrum úr
barnabókum. Á sama tíma var opnuð á Amtsbókasafninu sýningin "Yndislestur æsku minnar" þar sem nostalgía bernskulestrarins er í
öndvegi. Sýningin er fyrsta verkefni Barnabókasetursins og ber vott um eitt af markmiðum þess sem er að vinna að lestrarhvatningu meðal barna og unglinga.
Barnabókasetrinu bárust tvær góðar gjafir á stofnfundinum. Sigrún Klara Hannesdóttir fyrrverandi landsbókavörður færði setrinu yfir þúsund barnabækur að gjöf sem hún hefur safnað gegnum tíðina og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra færði setrinu eina og hálfa milljón í stofnfé.
Barnabókasetrið er rannsóknasetur um barnabókmenntir og lestur barna. Það er samstarfsverkefni HA, Amtsbókasafnsins og Minjasafnsins á Akureyri en auk þeirra eiga aðild að setrinu Rithöfundasamband Íslands, SÍUNG - Samtök barna og unglingabókahöfunda, IBBY, og Félag fagfólks á skólasöfnum.



