Háskólinn á Akureyri

Styrkur til byggđarannsóknar viđ HA Rannsóknasjóður Vegagerðarinnar hefur veitt rannsóknateymi við

Styrkur til byggđarannsóknar viđ HA

Nemendur í HA að vinnu við rannsókn á áhrifum HéðinsfjarðargangaRannsóknasjóður Vegagerðarinnar hefur veitt rannsóknateymi við Háskólann á Akureyri fimm milljón króna styrk árið 2010 til rannsóknar á áhrifum Héðinsfjarðarganga á samgöngur, samfélag, menningu og lífshætti á norðanverðum Tröllaskaga.

Þóroddur Bjarnason, prófessor við HA stýrir rannsókninni en aðrir þátttakendur í rannsóknateyminu eru Edward Huijbens, Jón Þorvaldur Heiðarsson og Vífill Karlsson við viðskiptadeild HA, Grétar Þór Eyþórsson, Kjartan Ólafsson, Kolbeinn Stefánsson, Sveinn Arnarsson og Þóra Kristín Þórsdóttir við félagsvísindadeild HA, Sonja Stelly Gústafsdóttir við heilbrigðisdeild HA, Hjalti Jóhannesson við RHA og Tryggvi Hallgrímsson við Jafnréttisstofu. Þetta er í annað sinn sem Rannsóknasjóður Vegagerðarinnar styrkir þessa langtímarannsókn en verkefnislok eru áætluð í árslok 2012.

Markmið þessa verkefnis er að leggja heildstætt mat á þær breytingar og auka skilning á áhrifum stórframkvæmda í vegagerð almennt. Verkefnið sem hófst árið 2009 skiptist í fimm meginsvið en tengist saman með heildstæðri aðferðafræði. Í fyrsta lagi eru samgöngumynstur á svæðinu skoðuð með margvíslegum hætti. Í öðru lagi er búseta, búsetuáform og búsetuþróun kortlögð. Í þriðja lagi er litið til efnahagsgerðar samfélagsins með áherslu á atvinnu, húsnæði, verslun og þjónustu. Í fjórða lagi eru metnar breytingar á opinberri þjónustu, sérstaklega í skólamálum, heilbrigðisþjónustu, löggæslu og félagsþjónustu. Í fimmta lagi er félagslegur auður samfélaganna metinn með áherslu á félagslega þátttöku, samskipti og traust.

Verkefnið er unnið í samvinnu við hagsmunaaðila á borð við sveitarfélagið Fjallabyggð, Vegagerðina og ýmis samtök, fyrirtæki og opinberar stofnanir. Verkefninu er ætlað að efla skilning á áhrifum samgöngubóta á byggðaþróun og lífsgæði í dreifðum byggðum og getur því haft umtalsvert hagnýtt gildi fyrir stefnumótun í samgöngumálum á Íslandi og þekkingu á þessu sviði á alþjóðavettvangi.



Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Steinunn Fjóla Birgisdóttir

„Ég er mjög ánćgđ međ veru mína í Háskólanum á Akureyri, ţađ er góđur andi í skólanum og félaglífiđ frábćrt.“

Steinunn Fjóla Birgisdóttir nemandi í iđjuţjálfun
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf