Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur, rithöfundur og fjölmiðlamaður var staddur í Háskólanum
á Akureyri föstudaginn 3. september ásamt tæknimönnum. Tilgangur heimsóknarinnar var að taka upp kafla í þáttinn Nýsköpun-
Íslensk vísindi sem hefur verið sýndur hjá RÚV við miklar vinsældir. Kjartan Ólafsson lektor við hug- og
félagsvísindadeild HA og umsjónarmaður rannsóknar sem ber heitið:Börn og fjölmiðlanotkun kynnti rannsókn sína fyrir Ara
Trausta og búast má við þættinum í áhorf eftir áramót nú í vetur.
Á myndinni má sjá Ara Trausta Guðmundsson og Kjartan Ólafsson ásamt tæknimönnum.



