Þann 20. mars 2010 verður haldin ráðstefna á vegum Háskólans á Akureyri og
Menntaskólans á Akureyri í tilefni alþjóðlega stjörnufræðiársins 2009. Ráðstefnan fer fram í Menntaskólanum
á Akureyri frá kl. 10 - 24 laugardaginn 20. mars. Einnig eiga aðkomu að ráðstefnunni Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness,
Stjarnvísindafélag Íslands og Vísindafélag Norðlendinga.
Á dagskrá verða fræðsluerindi, umræður, sýningar á m.a. stjörnum, geimþokum og vetrarbrautum og boðið verður upp á stjörnuskoðun í nýjum sjónauka MA sem verður vígður við þetta tilefni. Á milli dagskrárliða verða til sýnis bækur, myndir og tæki. Dagskrána má nálgast hér. Aðgangur er ókeypis, öllum opinn og eru þátttakendur hvattir til að mæta með sjónauka til að nota í stjörnuteiti um kvöldið.
Á ráðstefnuvef HA er hægt að skrá sig á ráðstefnuna, smellið hér. Ekkert ráðstefnugjald.
Áhugasömum er einnig bent á að sunnudaginn 21. mars er húsið opið almenningi frá 13:00-16:00.



