Háskólinn á Akureyri

Vefur Háskólans á Akureyri međal fimm bestu ríkisvefja 2011 Úttekt á opinberum vefjum ríkis og sveitarfélaga fór fram

Vefur Háskólans á Akureyri međal fimm bestu ríkisvefja 2011

Úttekt á opinberum vefjum ríkis og sveitarfélaga fór fram í fjórða skiptið 2011. Alls voru skoðaðir 267 vefir ríkisstofnana, ráðuneyta og sveitarfélaga og metið var samkvæmt gátlista hve vel vefirnir uppfylltu kröfur vefhandbókar ríkisins um aðgengi, nytsemi, innihald og þjónustu.

Niðurstöður úttektar á opinberum vefjum voru kynntar á fundi á vegum innanríkisráðuneytisins í dag undir yfirskriftinni: Hvað er spunnið í opinbera vefi 2011? Jafnframt var í fyrsta sinn veitt viðurkenning fyrir bestu vefina. Dómnefnd fékk í hendur lista yfir 5 bestu vefi ríkisstofnana/ráðuneyta samkvæmt niðurstöðum úttektar Deloitte en það voru vefir:

Fiskistofu
Háskólans á Akureyri
Neytendastofu
Tollstjóra
Tryggingastofnunar

Hlaut vefur Tryggingastofnunar viðurkenninguna besti ríkisvefurinn 2011 og vefur Akureyrarbæjar viðurkenninguna besti sveitarfélagavefurinn 2011.

Nánar má lesa um úttektina og veitingu viðurkenninganna á vef innanríkisráðuneytisins hér.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Tinna Stefánsdóttir

„Sálfrćđi er krefjandi, spennandi og skemmtilegt fag sem opnar marga möguleika ađ námi loknu.“

Tinna Stefánsdóttir nemandi í sálfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf