Háskólinn á Akureyri

Verkefnastjórnun – leiđtogaţjálfun: Nýtt nám hjá Símenntun HA Námið hefur verið kennt hjá Endurmenntun HÍ frá

Verkefnastjórnun – leiđtogaţjálfun: Nýtt nám hjá Símenntun HA

Símenntun HANámið hefur verið kennt hjá Endurmenntun HÍ frá árinu 2003 við miklar vinsældir en nú verður boðið upp á námið í fyrsta sinn hjá Símenntun HA í samstarfi við Nordica ráðgjöf og Endurmenntun HÍ.

Námið er fjölbreytt og  ætlað öllum þeim sem vilja öðlast þekkingu og þjálfun á sviði verkefnastjórnunar og efla leiðtogahæfileika sína. Námið gagnast stjórnendum og millistjórnendum fyrirtækja, stofnana, félagasamtaka svo og í daglegu lífi.

Námið er ígildi 24 ECTS eininga náms á grunnstigi háskóla og skiptist í fjögur 6 eininga námskeið. Kennslufyrirkomulag verður tvö vikutímabil á haust- og vormisserum sem gerir fólki kleift að sækja námið víða að frá landsbyggðinni.

Inntökuskilyrði er stúdentspróf eða sambærileg menntun.

Nánari upplýsingar um námið má finna hér, á vef Símenntunar HA.



Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Vigdís Ósk Sveinsdóttir

„Lotukennsla, símat, toppkennarar og persónulegt umhverfi er ţađ sem lögfrćđikennslan viđ HA býđur upp á.“

Vigdís Ósk Sveinsdóttir hdl. hjá Lögmönnum Höfđabakka
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf