Háskólinn á Akureyri fagnar á árinu 25 ára afmæli sínu og af því tilefni verður viðamikil og metnaðarfull dagskrá í boði alla mánuði ársins sem starfsfólk og nemendur háskólans standa að. Haldnir verða fyrirlestrar, kynningar og ýmsir viðburðir sem í senn eru fróðlegir og skemmtilegir og vonast er til að sem flestir geti nýtt sér það sem boðið verður upp á. Nánari dagskrá verður auglýst í janúar á vef háskólans.
Háskólinn á Akureyri býður alla hjartanlega velkomna á viðburði ársins 2012.



