Laugardaginn 28. ágúst kl. 13.30-14.30 verður nýtt húsnæði
Háskólans á Akureyri vígt við hátíðlega athöfn á Sólborg. Boðið verður upp á léttar veitingar og lifandi
tónlist og eru allir hjartanlega velkomnir. Hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrú verða viðstödd en forsetinn mun
flytja ávarp í tilefni dagsins. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra mun einnig heiðra hátíðina og flytja ávarp.
Háskólinn á Akureyri hefur verið í stöðugri uppbyggingu og þróun í bráðum aldarfjórðung og leggur metnað sinn í að byggja upp krefjandi og styðjandi námsumhverfi fyrir nemendur. Nýja húsnæðið er fjórði áfangi í byggingarsögu háskólans og markar tímamót þar sem öll kennsla og rannsóknir við HA mun nú fara fram á Sólborgarsvæðinu við Norðurslóð og skapa þannig þekkingarsamfélag í hjarta Akureyrarbæjar.
Nýja húsnæðið er um 2.400 fermetrar að stærð og verður öll aðstaða til náms og kennslu til fyrirmyndar. Nýir fyrirlestrarsalir búnir öflugum tæknibúnaði bæta m.a. aðstöðu til fjarkennslu og fjarnáms og þjónusta og aðstaða nemenda til verkefnavinnu og samkomuhalds eflist. Hátíðasalur nýja húsnæðisins rúmar allt að 500 manns í sæti og anddyrið verður hjarta háskólans, búið m.a. upplýsingastöndum- og skjám auk setrýmis og aðstöðu til ýmissa uppákoma.
Húsnæðið er allt hið glæsilegasta en við hönnun þess var lögð áhersla á léttleika, birtu og tengsl rýma. Aðalverktaki er Tréverk ehf. Dalvík. Hönnuðir eru: GLÁMA-KÍM arkitektar, Almenna verkfræðistofan, Raftákn og Landslag og um eftirlit sá Framkvæmdasýsla ríkisins.
Að lokinni vígsluathöfn verður opið hús í nýja húsnæðinu, sem stendur frá 14.30-17.00. Lifandi tónlist verður flutt og boðið verður upp á léttar veitingar fyrir stóra sem smáa, m.a. grillað hvalkjöt, pylsur og tertu.
Á opna húsinu gefst gestum m.a. kostur á að kynna sér nýbygginguna, námsframboð og starfsemi fræðasviða og rannsóknarstofnana við Háskólann á Akureyri og taka þátt í tilraunum og skemmta sér. Fjölmargt verður í boði og ættu allir í fjölskyldunni að finna eitthvað við sitt hæfi. Meðal dagskrárliða verður myndlistarsýning barna fædd 2004 með þemanu: Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór, blóðþrýstings- og blóðsykursmælingar, fiskaleikfimi, efnafræðitilraunin Galdraseyði í glösum, glærusýningar, andlitsmálun, kynning á verkefninu: Leikur, mál og listir - fyrir litla krakka ásamt kynningum á verkefnum nemenda við Háskólann á Akureyri og margt fleira.
Allir eru hjartanlega velkomnir og eru hvattir til að mæta á atburðina og gera sér glaðan dag í Háskólanum á Akureyri. Sjón er sögu ríkari!



