Laugardaginn 13. mars verður fundur í
Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu kl 15.00. Fyrirlesari er Grétar Þór Eyþórsson prófessor í
stjórnmálafræði og aðferðafræði við Háskólann á Akureyri. Erindi hans ber yfirskriftina Íbúakosningar. Er
málið svona einfalt?.
Aukin afskipti og áhrif hins almenna borgara á ákvarðanatöku í samfélaginu – einkanlega milli hinna reglubundnu kosninga til sveitarstjórna og Alþingis – eru meðal mála málanna í þjóðfélaginu í dag. Aukin áhrif hins almenna borgara eru að margra mati ákall nýrra tíma í þjóðfélaginu, ákall um bætt lýðræði. Í erindinu er fjallað um nokkrar þeirra tilrauna sem gerðar hafa verið í því skyni að efla lýðræði í sveitarstjórnum í nágrannalöndum okkar? Hver er reynslan af slíkum tilraunum? Sjónum verður þó einkanlega beint að íbúakosningum í sveitarfélögum og fjallað um helstu rök með því að viðhafa þær, en einnig fjallað um af hverju rétt geti verið að gæta hófs í því sambandi. Nánar á http://www.visindafelag.is/



