Háskólinn á Akureyri

Vísindamenn viđ Háskólann á Akureyri birta grein um etanól- og vetnisframleiđslu hitakćrrar bakteríu í tímaritinu Applied Energy Jóhann

Vísindamenn viđ Háskólann á Akureyri birta grein um etanól- og vetnisframleiđslu hitakćrrar bakteríu í tímaritinu Applied Energy

Mynd: www.biochem.wisc.eduJóhann Örlygsson, prófessor við auðlindadeild fékk nýlega vísindagrein birta í tímaritinu Applied Energy. Greinin sem fjallar um öfluga etanól- og vetnisframleiðandi hitakæra bakteríu. Meðhöfundur Jóhanns er Margrét Auður Sigurbjörnsdóttir, sérfræðingur við auðlindadeild en greinin er m.a. afrakstur meistaraverkefnis hennar. 

Bókfræðilegar upplýsingar eru:
Sigurbjornsdottir MA, Orlygsson J. Combined hydrogen and ethanol production from sugars and lignocellulosic biomass by Thermoanaerobacterium AK54. Applied Energy. Accepted manuscript online: doi: 10.1016/j.apenergy.2011.11.035. Greinina má sjá hér .

Í greininni er fjallað um bakteríustofn af ættkvísl Thermoanaerobacterium. Vetnis-  og etanólframleiðslugeta stofnsins á sykrum og flóknum lífmassa (gras, pappír, hálmur, hampur, sellulósi) er rannsökuð m.t.t. mismunandi umhverfisþátta. Stofninn getur nýtt sér fjölmargar sykrur eins og t.d. xýlósa, glúkósa, galaktósa. Aukinn upphafsstyrkur glúkósa hindraði hins vegar stofninn verulega og aukinn hlutþrýstingur vetnis leiddi til aukinnar framleiðslu á mjólkursýru en minni framleiðslu á etanóli. Í ljós kom að efnafræðileg formeðhöndlun á flóknum lífmassa jók verulega heimtur á bæði etanóli og vetni við gerjun. Mesta framleiðslan var á sellulósa eða 12.2 mol H2/g glucose og 3.7 mól etanól/g glúkósa.



Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Barbara Helgadóttir

„Háskólinn á Akureyri er mjög góđur skóli. Ég er sérstaklega ánćgđ međ símatiđ sem er í sálfrćđinni.“

Barbara Helgadóttir nemandi í sálfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf