Háskólinn á Akureyri

Haustið 2012 býður Háskólinn á Akureyri væntanlegum nemendum að innrita sig í fjarnám í

Fjarnám

Haustið 2012 býður Háskólinn á Akureyri væntanlegum nemendum að innrita sig í fjarnám í eftirfarandi greinum:

Sífellt fleiri velja að stunda fjarnám og nú er svo komið að um helmingur nemenda við Háskólann á Akureyri eru fjarnemar. Frá upphafi hefur verið lögð áhersla á að mynda nemendahópa þar sem boðið er upp á fjarnám og því er námsframboðið skipulagt í samstarfi við fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar um allt land. Þar hafa nemendur vinnuaðstöðu, nettengingu, aðgengi að myndfundabúnaði og aðstöðu til próftöku. Námið fer að mestu fram um netið en til stuðnings eru myndfundir og er upplýsingatæknin nýtt til hins ýtrasta. Mikilvægt er því að fjarnemar hafi aðgang að öflugri nettengingu (1 mb. eða meira). Fyrirkomulag fjarnámsins er mismunandi eftir greinum. Ýmist er það fullt nám í dagskóla eða nám sem er sniðið að þörfum þeirra sem stunda fjarnám samhliða starfi.

Tilhögun fjarnáms
Kennsla og samskipti fara fram á netinu, myndfundum og námslotum. Öll námskeið hafa heimasíðu í rafrænu kennslukerfi þar sem nemar hafa til dæmis aðgang að upptökum úr dagskóla, námsefni frá kennara og tækjum til samskipta, verkefnavinnu og próftöku.

Annað

  • Fyrirkomulag fjarnáms er sniðið að hverju fræðasviði og því er nokkur breytileiki á milli þeirra.
  • Fjarnemar greiða sömu skrásetningargjöld og aðrir nemendur við háskólann, kr. 60.000. Til sumra fræðslu- og símenntunarmiðstöðva þarf einnig að greiða hófleg aðstöðugjöld.
  • Umsóknarfrestur er til 5. júní.
  • Nánari upplýsingar eru veittar hjá viðkomandi sviðum.

Samstarfsaðilar um land allt
Lögð er rík áhersla á myndun námshópa þar sem boðið er upp á fjarnám. Með því móti myndast námssamfélag þar sem nemendur fá stuðning og hvatningu hver frá öðrum. Háskólinn hefur frá upphafi átt gott samstarf við fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar víða um land en kennt er til yfir 20 staða. Þar standa nemum til boða námsver með vinnuaðstöðu og nettengingu, aðgengi að myndfundabúnaði og aðstöðu til próftöku. Lokapróf eru í flestum tilvikum tekin hjá fræðslu- og símenntunarmiðstöðvunum.

Helstu samstarfsaðilar eru:
Vesturland Símenntunarmiðstöð Vesturlands
Egilsstaðir Þekkingarnet Austurlands
Húsavík Þekkingarsetur Þingeyinga
Höfuðborgarsvæðið Námsflokkar Hafnarfjarðar, miðstöð símenntunar
Ísafjörður Háskólasetur Vestfjarða
Reykjanesbær Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
Sauðárkrókur Farskólinn - miðstöð símenntunar Norðurlandi vestra
Árborg Háskólafélag Suðurlands
Vestmannaeyjar Viska - Fræðslu- og símenntunarmiðstöð

Nemendur við Háskólann á Akureyri geta gengið að því vísu að þeir öðlist góða menntun í metnaðarfullu og alþjóðlegu náms- og rannsóknarumhverfi. Almenningur, atvinnulíf og stjórnvöld geta treyst því að háskólinn takist á við viðfangsefni með gagnrýna hugsun og heill samfélagsins að leiðarljósi.

Efst á baugi

Nemendur

Starfsmenn

Á nćstunni

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Hjörtur Ágústsson

„Ég flutti frá Reykjavík til Akureyrar til ađ stunda nám í nútímafrćđi. Námiđ var lćrdómsríkt ekki síst ferđ mín til Indlands í skiptinám. “

Hjörtur Ágústsson kynningarfulltrúi hjá Evrópu unga fólksins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf