Háskólinn á Akureyri

Inntökuskilyrði eru bakkalárpróf eða sambærileg próf og starfsréttindi á sviði kennslu,

Diplómunám 60 ECTS einingar

Inntökuskilyrði eru bakkalárpróf eða sambærileg próf og starfsréttindi á sviði kennslu, þjálfunar og umönnunar. Markmið námsins er að efla nemendur til þess að takast á við störf í menntakerfinu sem krefjast framhaldsmenntunar á sviði menntunarfræða ásamt því að auka hæfni þeirra til þess að stunda frekara nám. Við upphaf náms skráir nemandi sig á tilgreint áherslusvið eða í almennt nám.

Nemandi getur brautskráðst með 60 eininga Dipl.Ed. eða haldið áfram til 120 eininga meistaraprófs og lokið annað hvort rannsóknartengdu meistaranámi til M.A.-gráðu eða meistaranámi í menntunarfræðum til M.Ed.-gráðu. Í diplómunámi eru áherslusvið sett saman úr skyldunámskeiðum áherslusviðs og valnámskeiðum. Krafa er gerð um ákveðna tímasókn í námskeið. Kennsla fer fram í staðbundnum lotum, að jafnaði fjórum sinnum á misseri, en að öðru leyti með breytilegu fjarnámssniði.

 

„Ástæðan fyrir því að ég fór í meistaranám er einföld, ég vildi læra stjórnun skólastofnana þar sem ég starfa við skólastjórnun. Námið er afar heppilegt fyrir mig þar sem ég get stundað það samhliða starfi. Námskeiðin eru fjölbreytt og tengjast starfi mínu. Mikil áhersla er lögð á gagnrýna hugsun, ígrundun og samvinnu. Kennslan er persónuleg og kennararnir leggja sig fram við að aðstoða nemendur eftir fremsta megni.“

Valdimar Víðisson
grunnskólakennari og meistaranemi 

 
Uppbygging námsins
Áherslusvið 30 ein:
Valnámskeið - 30 ein:
Lokaverkefni
-Almennt svið

-Námskrár- og kennslufræði

-Sérkennslufræði

-Stjórnun í skólastofnunum

Námskeið á almennu sviði eru valkvæm en bundið val er á öðrum áherslusviðum
Öll námskeið nema lokaverkefni eru einnig valnámskeið.

Fyrir utan námskeið í kjarna og á
áherslusviðum eru í boði nokkur valnámskeið að auki.

 
Diplómuverkefni er valkvæmt

Diplómunám er jafnframt fyrra ár
í meistaranámi.

Sjá ítarlega náms- og kennsluskrá
Blar Gulur Hvitur
A A A
María Einarsdóttir

„Ţetta er lítill og persónulegur háskóli ţar sem ţú ert ekki einn af hundrađ í bekk, ţess vegna fćr mađur mikiđ út úr náminu.“

María Einarsdóttir nemandi í iđjuţjálfunarfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf