Diplómu- og meistaranám er ætlað kennurum og skólastjórnendum og öðrum starfandi sérfræðingum í menntakerfinu sem vilja efla starfshæfni sína og styrkja sérþekkingu sína á viðkomandi starfssviði. Jafnframt er námið ætlað þeim sem hyggjast leggja stund á rannsóknir eða þau störf önnur er krefjast framhaldsmenntunar í menntunarfræðum. Í náminu eru tvö leiðarstef: Gagnrýnin hugsun og ígrundað starf. Hægt er að ljúka 30 eða 60 ECTS eininga diplómunámi (Dipl.Ed.-gráðu) og 120 ECTS eininga meistaranámi (M.Ed.-gráðu).
Nemendur geta valið á milli sviða og almennra námsleiða (sbr. töflur D1–4 og M1–2 um uppbyggingu námsleiða). Ákveðið er hverju sinni hvaða svið verða í boði en ekki er trygging fyrir því að hægt verði að bjóða upp á kennslu á öllum sviðum á hverju ári.
Námið hefst með inngangsnámskeiðum í hópefli, notkun upplýsingakerfa háskólans o.fl. og er skylt að mæta í þau námskeið.
Inntökuskilyrði
Rétt til að sækja um inntöku eiga þeir sem lokið hafa fullgildu háskólaprófi til starfsréttinda á sviði kennslu, þjálfunar, uppeldis og umönnunar. Að jafnaði er ekki krafist starfsreynslu en unnt er að gera hana að skilyrði fyrir þátttöku í tilteknum námskeiðum enda komi það fram í námskrá. Nemendur geta sótt um að taka hluta námsins við aðra háskóla, innanlands sem erlendis.
Námskipan
Hægt er að ljúka 30 og 60 ECTS eininga námi á einu ári eða dreifa því á lengri tíma. Hámarksnámstími er tvö ár til 30 eininga prófs en fjögur ár til 60 eininga prófs. Meistaranám er 120 ECTS einingar og skipulagt þannig að unnt sé að ljúka því á tveimur árum ef stundað er fullt nám. Hámarkstími til meistaraprófs er sex ár.
Nokkrar námsleiðir eru í boði til 30, 60 eða 120 ECTS eininga náms þar sem lögð er áhersla á tiltekin svið innan menntunarfræða. Aðrar slíkar leiðir eru í undirbúningi. Hægt er að óska eftir að taka nokkur slík áherslusvið í skiptinámi í Kennaraháskóla Íslands, sbr. reglur um skiptinám innanlands og sérstakar klásúlur hér á eftir um diplómunámið og meistaranámið. Meðal þeirra sviða eru fjölmenning, tölvu- og upplýsingatækni, kennslufræði og skólastarf, menntunar- og kennslufræði yngri barna, nám og kennsla fullorðinna, listir, íslenskukennsla, stærðfræðimenntun og náttúrufræðimenntun.
Áherslusvið eru skipulögð eftir þeirri meginreglu að í 30 ECTS eininga námi eru tvö tíu eininga skyldunámskeið á viðkomandi áherslusviði, í 60 eininga námi eru þrjú tíu eininga skyldunámskeið á viðkomandi sviði auk diplómuverkefnis og í 120 ECTS eininga meistaranámi skulu, auk skyldunámskeiða úr kjarna, vera þrjú fimm eininga skyldunámskeið og meistaraprófsverkefni eða meistaraprófsritgerð á viðkomandi sviði. Auk þess gefst kostur á almennum leiðum, bæði í diplómu- og meistaranáminu, til að efla þekkingu sínu í starfi eða til undirbúnings lengra námi. Enn fremur hafa allir, sem hafa lokið námi á tilteknu sviði til 30 eða 60 eininga diplómuprófs, möguleika til að halda áfram til meistaraprófs á sama sviði eða almennu sviði.
Nemandi skráir sig í 30, 60 eða 120 ECTS eininga nám að eigin vali en getur hvenær sem er á námstímanum tilkynnt skrifstofu deildarinnar að hann óski þess að breyta þeirri skráningu. Nemandi getur breytt um áherslusvið í náminu án sérstakrar tilkynningar en gætir þess að hann uppfylli skilyrði um hvaða námskeið skal taka áður en hann óskar þess að brautskrást af því sviði.
Námskeiðin í diplómu- og meistaranáminu skiptast í kjarnanámskeið meistaranámsins, skyldunámskeið á áherslusviðum, valnámskeið, lesnámskeið, sjálfstæð verkefni og lokaverkefni. Skyldunámskeið á áherslusviðum þjóna einnig því hlutverki að vera valnámskeið á öðru áherslusviði. Í töflu N1 eru námskeiðin þó aðeins flokkuð á einum stað.
Tafla N1. Yfirlit um námskeið í diplómu- og meistaranámi
Kjarnanámskeið í meistaranámi | Skyldunámskeið á sviðum | Valnámskeið | Lesnámskeið | Sjálfstæð verkefni og lokaverkefni |
ÁLI0155 Álitamál í skólastarfi HSS0155 Hugtök, stefnur og straumar í menntun EIR0155 Eigindlegar rannsóknaraðferðir MER0155 Megindlegar rannsóknaraðferðir | UMS0155 Umsjónarkennarinn LNN0155 Leiðsögn nema og nýliða LFS0155 Læsi – fyrstu skrefin LNÁ0155 Lestur til náms MNS0155 Málið – nemandi og samfélag JOF0155 Jafnrétti og fjölmenning SÉR0155 Stefnur í sérkennslufræði RÁÐ0255 Ráðgjöf og viðtalstækni LHÖ0155 Leshömlun SKÞ0155 Skólar og skólaþróun SKM0255 Skólaþróun og mat STJ0155 Stjórnandinn í starfi RSS0155 Rekstur og rekstrar-forsendur skóla SFN0155 Einstaklingssniðið sérfræðinámskeið | Ýmis námskeið FOS0105 Fötlun og samfélag Námskeið samkennd með kennslufræði KNG0155 Kennslufræði námsgreina NÁM0155 Námskrár- og kennslufræði SÁK0155 Sálfræði fyrir kennara | SÉR0255 Lesnámskeið í sérkennslu- eða lestrarfræðum STJ0255 Lesnámskeið í stjórnun eða menntastefnufræðum | DVE0155 Diplómuverkefni RÁÆ0155 Rannsóknaráætlun ÞVE0155 Þróunarverkefni á vettvangi MPR0215 Meistaraprófsverkefni MPR0000 Meistaraprófsritgerð forskráning MPR0220 Meistaraprófsritgerð MPR0230 Meistaraprófsritgerð |
Diplómu- og meistaranámið er þannig skipulagt að þau námskeið sem krefjast tímasóknar eru að jafnaði kennd á haust- og vormisseri. Kennsla getur þó farið fram utan reglulegs háskólaárs (í fyrri hluta ágúst eða síðari hluta maí). Að jafnaði er hvert námskeið kennt í fjórum staðbundnum lotum á misseri en að öðru leyti fer námið fram með breytilegu fjarnámssniði. Lesnámskeiðum, diplómuverkefni, rannsóknaráætlun, skólaþróunarverkefni á vettvangi, meistaraprófsverkefni og meistaraprófsritgerð er hægt að ljúka á hvaða misseri sem er nema fyrsta námsmisseri (sjá nánar um forkröfur einstakra námskeiða). Áður en misseri hefst verður nemandi að ganga frá því við brautarstjóra eða umsjónarkennara viðeigandi námskeiða að leiðsögukennari verði tiltækur á þeim tíma sem hann hyggst stunda nám í lesnámskeiðum og vinna að ritgerðum. Þetta gildir sérstaklega um sumarmisseri (maí til ágúst).
Möguleiki er á að meta námskeið á bakkalárstigi sem valnámskeið á diplómu- eða meistarastigi að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum enda séu námskeiðin ekki hluti af prófgráðu nemandans á því stigi:
- Náms- og matsnefnd framhaldsbrautar samþykkir námskeiðið fyrirfram,
- Námskeiðið er tekið eftir að nemandinn lauk fyrrnefndri prófgráðu,
- Umsjónarkennari námskeiðsins hefur hæfisdóm sem lektor, dósent eða prófessor,
- Nemandi nær minnst 7 í lokaeinkunn en 8 ef námskeið er kennt á fyrsta námsári,
- Nemandi vinnur sérstök verkefni sem jafngilda 40% aukavinnu í námskeiðinu eða tekur 40% fleiri einingar með ofangreindum kröfum um lágmarkseinkunn.
Aðeins má meta tíu ECTS einingar með þessum hætti hjá hverjum nemanda.


