Háskólinn á Akureyri

Meistaranám til M.A.-gráðu er ætlað þeim sem vilja efla starfshæfni sína og sérþekkingu

Meistaranám í menntavísindum til M.A.-gráđu

Meistaranám til M.A.-gráðu er ætlað þeim sem vilja efla starfshæfni sína og sérþekkingu á sviði menntavísinda og byggja upp sérhæfingu í rannsóknum í menntavísindum. Inntökuskilyrði er bakkalárpróf eða sambærilegt próf með að jafnaði fyrstu einkunn. Við upphaf náms skráir nemandi sig á tilgreint áherslusvið eða í almennt nám án slíkrar sérhæfingar.

Áherslusvið eru sett saman úr kjarnanámskeiðum (sem eru sameiginleg öllum áherslusviðum), skyldunámskeiðum áherslusviðs, lokaverkefni og valnámskeiðum. Lokaverkefni skal vera á því áherslusviði sem nemandinn er skráður á. Krafa er gerð um ákveðna tímasókn í námskeið. Kennsla fer fram í staðbundnum lotum, að jafnaði fjórum sinnum á misseri, en að öðru leyti með breytilegu fjarnámssniði.

„Háskólinn á Akureyri varð fyrir valinu vegna þess að þar fann ég nám sem ég hafði lengi haft áhuga á til að bæta þekkingu mína, þ.e. lestrarfræði. Mér finnst verulega gott að fara í staðarloturnar til Akureyrar því þá gefst mér tími til að einbeita mér að náminu og komast frá daglegu amstri.“

Elsa Þorfinna Dýrfjörð
grunnskólakennari og meistaranemi 

   
Meistaranám til M.A.-gráðu - 120 einingar
Áherslusvið
Kjarni 20  ein.
Skyldunámskeið:
Lokaverkefni:
Almennt svið

Lestrarfræði

Námskrár- og kennslufræði

Opinber stefnumótun, menntastefna og þróun skóla

Sérkennslufræði

Stjórnun í skólastofnunum

Námskeið á almennu sviði eru valkvæm en bundið val er á öðrum áherslusviðum.
Eigindlegar eða  megindlegar  rannsóknaraðferðir.

Álitamál í skólastarfi eða Kenningar og rannsóknir í menntunar­fræði.

Fjöldi eininga í vali fer eftir stærð loka-verkefns.


Bundið val eftir áherslusviði.

Fyrir utan námskeið í kjarna og á áherslusviðum eru í boði nokkur valnámskeið að auki.
 40, 60 eða 90 ein.

Efni meistaraprófs-ritgerð á áherslusviði.

Ef meistaraprófs-ritgerð er 90 einingar eru þrjú skyldunámskeið í kjarna.
Sjá ítarlega náms- og kennsluskrá


Blar Gulur Hvitur
A A A
Ćgir Ţór Eysteinsson

„Fjölmiđlafrćđinámiđ er fyrst og fremst gríđarlega fjölbreytt og skemmtilegt. Ţađ er lögđ rík áhersla á sjálfstćđ vinnubrögđ og frumkvćđi. “

Ćgir Ţór Eysteinsson fréttamađur á RÚV
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf