Við Háskólann á Akureyri er boðið tveggja ára nám á meistarastigi í lögfræði sem lýkur með prófgráðunni Magister Leges (M.L.). Sú prófgráða, í framhaldi af þriggja ára B.A.-prófi í lög fræði, jafngildir hefðbundnu fimm ára námi til embættisprófs í lögfræði (cand.jur.). Áherslan í náminu er á hagnýta íslenska lögfræði, jafnt á sviði opinbers réttar, einkamálaréttar, refsiréttar og réttarfars. Þannig verða nemendur mjög vel í stakk búnir til að takast á við lögfræðistörf sem lögmenn, lögfræðingar hjá opinberum stofnunum eða einkafyrirtækjum eða dómarar. Kennslu annast fastir kennarar deildarinnar auk starfandi lögfræðinga. Námið fer fram á íslensku.
Inntökuskilyrði
Inntökuskilyrði í M.L.-nám í lögfræði er B.A.-gráða í lögfræði frá HA eða önnur sambærileg prófgráða. Almennt er miðað við heildareinkunn 7 að lágmarki (eða sambærilega einkunn í öðru einkunnakerfi). Nemendur sem uppfylla ekki framangreind inntökuskilyrði geta þó sótt um í M.L.- námið og metur deildin slíkar umsóknir hverja fyrir sig.
Símat
Námsmatið byggir á símati með sama hætti og í B.A.-náminu.
Félagslíf laganema
Laganemar eru félagar í ÞEMIS, sem er aðili að Félagi stúdenta við Háskólann á Akureyri. ÞEMIS stendur fyrir
margvíslegri starfsemi, svo sem öflugu félagslífi á meðal laganema ásamt því að gæta hagsmuna þeirra og aðstoða
þá sem hyggja á skipti- eða framhaldsnám við erlenda háskóla. Jafnframt gefa laganemar út fræðilegt ársrit sem nefnist
Lögfræðingur. Sjá nánar á slóðinni themis.fsha.is.
|
„Í lögfræðinni við Háskólann á Akureyri fékk ég djúpan skilning á viðfangsefninu og tileinkaði mér öguð vinnubrögð sem reynst hefur mér ómetanlegt veganesti.“ Ingólfur Friðriksson |
![]() |



