Markmið námsins er að efla nemendur til þess að takast á við störf í menntakerfinu sem krefjast framhaldsmenntunar á sviði menntunarfræði ásamt því að auka hæfni þeirra til þess að stunda frekara nám.
Við upphaf náms skráir nemandi sig á tilgreint áherslusvið eða í almennt nám. Hann getur hvenær sem er á námstímanum breytt þeirri skráningu. Hámarksnámstími til Dipl.Ed. er tvö ár. Nemandi getur brautskráðst með 60 einingar eða haldið áfram til 120 eininga meistaraprófs og lokið annað hvort meistaranámi í menntunarfræði til M.Ed.-gráðu eða rannsóknartengdu meistaranámi til M.A.-gráðu.
Í náminu eru tvö leiðarstef: Gagnrýnin hugsun og ígrundað starf.
Námskipan
Í náminu geta nemendur valið milli tiltekinna áherslusviða (sjá töflu 1) en einnig er hægt að stunda almennt nám án slíkrar sérhæfingar.
Í diplómunámi eru áherslusvið sett saman úr skyldunámskeiðum og valnámskeiðum. Diplómuverkefni er valkvætt en velji nemandi að skrifa diplómuverkefni skal viðfangsefnið vera á því áherslusviði sem hann er skráður á. Hægt er að stunda fullt nám en nemandi ræður námshraða sínum. Lesnámskeiðum og diplómaritgerð er unnt að ljúka á hvoru misseri sem er eftir að forkröfur hafa verið uppfylltar. Kennsla fer fram í staðbundnum lotum fjórum sinnum á misseri að öllu jöfnu en að öðru leyti fer námið fram með breytilegu fjarnámssniði. Gerð er krafa um ákveðna tímasókn í námskeið.
Nemendur geta sótt um að taka hluta námsins við aðra háskóla, sbr. reglur um skiptinám.
Matsnefnd metur óskir um mat á fyrra námi. Nemendur sem óska eftir mati á námi þurfa að kynna sér matsreglur. Erindi skulu send skrifstofu hug- og félagsvísindasviðs.
Áherslusviđ og námskeiđ í 60 eininga diplómunámi
Svið | Skyldunámskeið áherslusviðs | Valnámskeið |
Almennt diplómunám | ÁLI0155 Álitamál í skólastarfi eða KRM0155 Kenningar og rannsóknir í menntunarfræði EIR0155 Eigindlegar rannsóknaraðferðir eða MER0155 Megindlegar rannsóknaraðferðir Skyldunámskeið eru tvö - 20 ein. | 40 einingar |
Námskrár- og kennslufræði | SÁK0155 Sálfræði fyrir kennara NKN0155 Nám og kennsla - námskrá EÞL0155 Einstaklingsþarfir og læsi KNN0155 Kennsla, nám og námsmat SKN0155 Skólaþróun - kennarinn og nemandinn í starfi Skyldunámskeið eru þrjú - 30 ein. Samkennt með kennsluréttindanámi | 30 einingar |
Lestrarfræði | MNS0155 Málið - nemandi og samfélag LFS0155 Læsi - fyrstu skrefin LNÁ0155 Lestur til náms SÉR0255 Lesnámskeið í sérkennslu- eða lestrarfræði Skyldunámskeið eru þrjú - 30 ein. | 30 einingar |
Sérkennslufræði | SÉR0155 Stefnur í sérkennslufræði RÁÐ0155 Ráðgjöf og viðtalstækni LHÖ0155 Leshömlun SÉR0255 Lesnámskeið í sérkennslu- eða lestrarfræði Skyldunámskeið eru þrjú - 30 ein. | 30 einingar |
Stjórnun í skólastofnunum | STJ0155 Stjórnandinn í starfi SKM0155 Skólaþróun og mat RSS0155 Rekstur og rekstrarforsendur skóla STJ0255 Lesnámskeið í stjórnun og menntastefnufræði Skyldunámskeið eru þrjú - 30 ein. | 30 einingar |
Námskeið á áherslusviðinu námskrár- og kennslufræði eru samkennd með kennsluréttindanámi. Þau eru aðeins opin þeim nemendum í diplómu- og meistaranámi sem skráðir eru á það áherslusvið.
Valnámskeiđ í diplómunámi
Tafla 2.
Haust 2011 | Vor 2012 | Haust 2012 | Vor 2013 | Haust 2013 | Vor 2014 | |
LNN0155 Leiðsögn nema og nýliða | x | x | x | |||
JOF0155 Jafnrétti og fjölmenning | x | x | x | |||
FOS0105 Fötlun og samfélag (Kennt í heilbrigðisdeild annað hvert ár á haustmisseri) | x | |||||
ÞVE0155 Þróunarverkefni á vettvangi | x | x | x | x | x | x |
DVE0155 Diplómuverkefni | x | x | x | x | x | x |
Námskeið í diplómu- og meistaranámi önnur en lokaverkefni | x | x | x | x | x | x |
Námskeið | Heiti | Einingar | Kjarni/val | Tegund |
ÁLI0155 | Álitamál í skólastarfi | 10 | Kjarni/val | Námskeið |
DVE0155 | Diplómuverkefni | 10 | Val | Verkefni |
EIR0155 | Eigindlegar rannsóknir | 10 | Kjarni/val | Námskeið |
EÞL0155 | Einstaklingsþarfir og læsi | 10 | Skylda | Námskeið |
LNN0155 | Leiðsögn nema og nýliða | 10 | Val | Námskeið |
LNÁ0155 | Lestur til náms | 10 | Skylda/val | Námskeið |
MNS0155 | Málið - nemandi og samfélag | 10 | Skylda/Val | Námskeið |
NKN0155 | Nám og kennsla - námskrá | 10 | Skylda | Námskeið |
SÁK0155 | Sálfræði fyrir kennara | 10 | Skylda | Námskeið |
SÉR0155 | Stefnur í sérkennslufræði | 10 | Skylda/Val | Námskeið |
STJ0155 | Stjórnandinn í starfi | 10 | Skylda/Val | Námskeið |
| ÞVE0155 | Þróunarverkefni á vettvangi | 10 | Val | Verkefni |
Námskeið | Heiti | Einingar | Kjarni/val | Tegund |
DVE0155 | Diplómuverkefni | 10 | Val | Verkefni |
| JOF0155 | Jafnrétti og fjölmenning | 10 | Val | Námskeið |
| KNN0155 | Kennsla, nám og námsmat | 10 | Kjarni/val | Námskeið |
KRM0155 | Kenningar og rannsóknir í menntunarfræði | 10 | Kjarni/val | Námskeið |
LFS0155 | Læsi - fyrstu skrefin | 10 | Skylda/val | Námskeið |
LHÖ0155 | Leshömlun | 10 | Skylda/val | Námskeið |
MER0155 | Megindlegar rannsóknir | 10 | Kjarni/val | Námskeið |
RÁÐ0155 | Ráðgjöf og viðtalstækni | 10 | Skylda/val | Námskeið |
RSS0155 | Rekstur og rekstrarforsendur skóla | 10 | Skylda/val | Námskeið |
SÉR0255 | Lesnámskeið í sérkennslu og lestrarfræðum | 10 | Skylda/val | Lesnámskeið |
SKM0155 | Skólaþróun og mat á skólastarfi | 10 | Skylda/val | Námskeið |
| SKN0155 | Skólaþróun - kennarinn og nemandinn í starfi | 10 | Skylda | Námskeið |
STJ0255 | Lesnámskeið í stjórnun og menntastefnufræðum | 10 | Skylda/val | Lesnámskeið |
ÞVE0155 | Þróunarverkefni á vettvangi | 10 | Val | Verkefni |
Námskeið í M.Ed.-námi | Skylda/val | Námskeið |
Hægt er að skrá sig í lesnámskeið og lokaritgerð bæði á haust- og vormisseri.


