Markmið og innritunarskilyrði
Rannsóknatengt meistaranám er ætlað þeim sem vilja efla starfshæfni sína og sérþekkingu á sviði menntavísinda og byggja upp sérhæfingu í rannsóknum á því sviði. Markmið námsins er að efla nemendur til þess að takast á við viðfangsefni á þessu sviði ásamt því að auka hæfni þeirra til þess að stunda frekara nám.
Innritunarskilyrði í M.A.-nám er 1. einkunn. Þeir sem ljúka 60 eininga viðbótarnámi í menntavísindum eða sambærilegu námi með 1. einkunn geta einnig innritað sig. Hámarksnámstími er fjögur ár.
Í náminu eru tvö leiðarstef: Gagnrýnin hugsun og ígrundað starf.
Námsskipan
M.A.-námið skiptist í kjarnanámskeið, námskeið á áherslusviðum og meistaraprófsritgerð (sjá yfirlit í töflu 1). Í kjarna eru í boði fjögur námskeið, tvö í aðferðafræði og tvö í menntavísindum. Af þeim verða allir að taka tvö námskeið, eitt námskeið í aðferðafræði og eitt í menntavísindum, og velja nemendur sér þau. Boðið er uppá námskeið á sex áherslusviðum: almennu sviði, lestrarfræði, námskrár- og kennslufræði, opinberri stefnumótun, menntastefnu og þróun skóla, sérkennslufræði og loks stjórnun og forystu (60 einingar hvert áherslusvið). Við upphaf náms skráir nemandi sig í námskeið á tilgreindu áherslusviði. Allir sem velja viðkomandi áherslusvið verða að taka það námskeið sem tilgreint er fyrst í upptalningu námskeiða sem í boði eru á hverju áherslusviði fyrir sig. Fjöldi eininga sem nemandi les á áherslusviði fer eftir stærð lokaverkefnis.
Lokaverkefni, meistaraprófsritgerð, skal vera á því áherslusviði sem nemandi velur sér. Nemendur á almennu sviði velja sér áherslu innan ramma menntavísinda. Lokaverkefni getur verið 40, 60 eða 90 einingar og ákveða nemendur stærð lokaverkefnis. Unnt er að skrá sig í lesnámskeiðum og meistaraprófsritgerð á hvoru misseri sem er eftir að forkröfur (sjá námskeiðslýsingar í kennsluskrá) hafa verið uppfylltar. Um lokaverkefni gilda sérstakar leiðbeiningar.
Kennsla fer fram í staðbundnum lotum fjórum sinnum á misseri að öllu jöfnu en að öðru leyti fer námið fram með breytilegu fjarnámssniði. Gerð er krafa um ákveðna tímasókn í námskeið. Hægt er að stunda fullt nám en nemandi ræður námshraða sínum. Öll námskeið nema lokaverkefni eru 10 einingar.
Nemendur geta sótt um að taka hluta námsins við aðra háskóla, sem gestnám við innlenda háskóla sbr. samning opinberra háskóla á Íslandi um gagnkvæman aðgang nemenda að námskeiðum eða sem skiptinám við erlenda háskóla sbr. reglur um skiptinám. Nemendur þurfa að kynna sér reglurnar á vef kennaradeildar og sækja um gesta- og skiptinám til matsnefndar kennaradeildar.
Matsnefnd metur óskir um mat á fyrra námi. Nemendur sem óska eftir mati á námi þurfa að kynna sér matsreglur (http://www.unak.is/kennaradeild/page/reglur_matsnefndar). Erindi skal senda skrifstofu hug- og félagsvísindasviðs.
Áherslusviđ og námskeiđ í M.A.-námi
Tafla 1.
Áherslusvið | Kjarnanámskeið - skyldunámskeið í kjarna eru tvö, 20 einingar | Skyldunámskeið áherslusviðs 60 einingar eru í boði á áherslusviðum | Lokaverkefni - meistaraprófsritgerð |
Almennt svið | ÁLI0110 Álitamál í skólastarfi eða KRM0110 Kenningar og rannsóknir í menntavísindum EIR0155 Eigindlegar rannsóknaraðferðir eða MER0110 Megindlegar rannsóknaraðferðir | MNS0110 Málið - nemandi og samfélag NNÞ0110 Námskrár og námskrárþróun SKM0110 Skólaþróun og mat á skólastarfi STJ0110 Stjórnun og forysta í skólum OSM0110 Opinber stefnumótun og menntastefna LNN0110 Leiðsögn og starfsþróun | MPR0240-40 ein. MPR0260-60 ein. MPR0290-90 ein. |
Lestrarfræði | ÁLI0110 Álitamál í skólastarfi eða KRM0110 Kenningar og rannsóknir í menntavísindum EIR0155 Eigindlegar rannsóknaraðferðir eða MER0110 Megindlegar rannsóknaraðferðir | MNS0110 Málið - nemandi og samfélag LFS0110 Læsi - fyrstu skrefin LNÁ0110 Lestur til náms SÉR0210 Lesnámskeið í sérkennslu - eða lestrarfræði LHÖ0110 Leshömlun RÁÐ0110 Ráðgjöf og viðtalstækni | Meistaraprófsritgerð á áherslusviði MPR0240-40 ein. |
| Námskrár- og kennslufræði | ÁLI0110 Álitamál í skólastarfi eða KRM0110 Kenningar og rannsóknir í menntavísindum EIR0155 Eigindlegar rannsóknaraðferðir eða MER0110 Megindlegar rannsóknaraðferðir | NNÞ0110 Námskrár og námskrárþróun SÁA0110 Skóli án aðgreiningar KNN0110 Kennsla, nám og námsmat MNS0110 Málið nemandi og samfélag SKM0110 Skólaþróun og mat á skólastarfi LNN0110 Leiðsögn og starfsþróun | Meistaraprófsritgerð á áherslusviði MPR0240-40 ein. |
| Opinber stefnumótun, menntastefna og þróun skóla | ÁLI0110 Álitamál í skólastarfi eða KRM0110 Kenningar og rannsóknir í menntavísindum EIR0155 Eigindlegar rannsóknaraðferðir eða MER0110 Megindlegar rannsóknaraðferðir | OSM0110 Opinber stefnumótun og menntastefnu STJ0110 Stjórnun og forysta í skólum SKM0110 Skólaþróun og mat á skólastarfi KNN0110 Kennsla, nám og námsmat RSS0110 Rekstur og rekstrarforsendur skóla JOF0110 Jafnrétti og fjölmenning | Meistaraprófsritgerð á áherslusviði MPR0240-40 ein. |
Sérkennslufræði | ÁLI0110 Álitamál í skólastarfi eða KRM0110 Kenningar og rannsóknir í menntavísindum EIR0155 Eigindlegar rannsóknaraðferðir eða MER0110 Megindlegar rannsóknaraðferðir | SÉR0110 Stefnur í sérkennslufræði RÁÐ0110 Ráðgjöf og viðtalstækni LHÖ0110 Leshömlun SÉR0210 Lesnámskeið í sérkennslu eða lestrarfræði LNN0110 Leiðsögn og starfsþróun JOF0110 Jafnrétti og fjölmenning | Meistaraprófsritgerð á áherslusviði MPR0240-40 ein. |
Stjórnun og forysta | ÁLI0110 Álitamál í skólastarfi eða KRM0110 Kenningar og rannsóknir í menntavísindum EIR0155 Eigindlegar rannsóknaraðferðir eða MER0110 Megindlegar rannsóknaraðferðir | STJ0110 Stjórnun og forysta í skólum SKM0110 Skólaþróun og mat á skólastarfi RSS0110 Rekstur og rekstrarforsendur skóla STJ02010 Lesnámskeið í stjórnun eða menntastefnufræði OSM0110 Opinber stefnumótun og menntastefna LNN0110 Leiðsögn og starfsþróun | Meistaraprófsritgerð á áherslusviði MPR0240-40 ein. |
Námskeiđ í M.A.-námi og áćtlun um frambođ ţeirra
Námskeið | Heiti | Einingar | Kjarni/áherslusvið | Tegund |
ÁLI0110 | Álitamál í skólastarfi | 10 | Kjarni/skylda | Námskeið |
EIR0110 | Eigindlegar rannsóknir | 10 | Kjarni/skylda | Námskeið |
LNN0110 | Leiðsögn og starfsþróun | 10 | Skylda | Námskeið |
LFS0110 | Læsi - fyrstu skrefin | 10 | Skylda | Námskeið |
MNS0110 | Málið - nemandi og samfélag | 10 | Skylda | Námskeið |
NNÞ0110 | Námskrár og námskrárþróun | 10 | Skylda | Námskeið |
| OSM0110 | Opinber stefnumótun og menntastefna | 10 | Skylda | Námskeið |
| SÁA0110 | Skóli án aðgreiningar | 10 | Skylda | Námskeið |
SÉR0110 | Stefnur í sérkennslufræði | 10 | Skylda | Námskeið |
STJ0110 | Stjórnun og forysta í skólum | 10 | Skylda | Námskeið |
SÉR0210 | Lesnámskeið í sérkennslu- eða lestrarfræði | 10 | Skylda/forkröfur | Lesnámskeið |
| STJ0210 | Lesnámskeið í stjórnun og menntastefnufræði | 10 | Skylda/forkröfur | Lesnámskeið |
| MPR0240 | Meistaraprófsritgerð | 40 | Skylda/forkröfur | Verkefni |
| MPR0260 | Meistaraprófsritgerð | 60 | Skylda/forkröfur | Verkefni |
| MPR0290 | Meistaraprófsritgerð | 90 | Skylda/forkröfur | Verkefni |
Námskeið | Heiti | Einingar | Kjarni/áherslusvið | Tegund |
| KRM0110 | Kenningar og rannsóknir í menntunarvísindum | 10 | Kjarni/skylda | Námskeið |
| MER0110 | Megindlegar rannsóknaraðferðir | 10 | Kjarni/skylda | Námskeið |
| JOF0110 | Jafnrétti og fjölmenning | 10 | Skylda | Námskeið |
KNN0110 | Kennsla, nám og námsmat | 10 | Skylda | Námskeið |
LNÁ0110 | Lestur til náms | 10 | Skylda | Námskeið |
LHÖ0110 | Leshömlun | 10 | Skylda | Námskeið |
RÁÐ0110 | Ráðgjöf og viðtalstækni | 10 | Skylda | Námskeið |
RSS0110 | Rekstur og rekstrarforsendur skóla | 10 | Skylda | Verkefni |
SKM0110 | Skólaþróun og mat á skólastarfi | 10 | Skylda | Verkefni |
| SÉR0210 | Lesnámskeið í sérkennslu- eða lestrarfræði | 10 | Skylda/forkröfur | Lesnámskeið |
| STJ0210 | Lesnámskeið í stjórnun eða menntastefnufræði | 10 | Skylda/forkröfur | Lesnámskeið |
| MPR0240 | Meistaraprófsritgerð | 40 | Skylda/forkröfur | Verkefni |
| MPR0260 | Meistaraprófsritgerð | 60 | Skylda/forkröfur | Verkefni |
| MPR0290 | Meistaraprófsritgerð | 90 | Skylda/forkröfur | Verkefni |


