Þráðlaust net
Nemendur og starfsmenn hafa frían aðgang að þráðlausu neti HA. Netið heitir UNAK og er
það aðgengilegt í nær öllum byggingum háskólans. Nálgast má WEP lykilinn hjá starfsmönnum Gagnasmiðju.
Boðið er upp á nettengingu í gegnum HA á stúdentagörðum. Í Útsteini og Klettastíg er þráðlaust netsamband.
Sömu leiðbeiningar gilda um að tengjast því eins og þráðlausa netinu í byggingum HA. Í Tröllagili og Drekagili þarf að tengjast
með netsnúru í vegg. Fésta sér um að opna netaðgang í þá tengla sem við eiga og þjónustar netið á
stúdentagörðunum.
Vírussmitaðar fartölvur
Vírussmitaðar fartölvur muna verða útilokaðar frá háskólanetinu og fá ekki að koma inn aftur fyrr en búið er að hreinsa
þær.
Sé vélum lokað skal viðhafa eftirfarandi vinnubrögð:
- Rjúfa nettengingar (t.d. tengingu með snúru; þráðlaust, ADSL, mótald eða VPN)
- Verða sér út um þær uppfærslur á stýrikerfinu sem þarf til að loka þeim öryggisholum sem eru til staðar.
- Verða sér út um þau tól sem þarf til að hreinsa vírusinn, vírusana eða orminn, ormana úr stýrikerfinu.
- Hreinsa ormana og vírusana af viðkomandi tölvu.
- Uppfæra stýrikerfið.
- Hafa samband við gagnasmiðju (til að láta opna fyrir netaðgang).
- Sé lokað aftur á tölvuna, hefur hún ekki verið lagfærð eða vírus smitast að nýju og verður þá annað hvort að fara aftur í sömu aðgerðir eða setja vélina upp frá grunni. Notendur geta farið í tölvuver og náð í uppfærslur og hreinsitól. Ef notendur vita ekki hvernig þeir eiga að bera sig að við að laga stýrikerfin eða hreinsa út ormana þurfa þeir að leita sér aðstoðar.


