Háskólinn á Akureyri

 Gagnasmiðjan... Á Sólborg til hægri handar við inngang bókasafnsins Opin alla virka daga kl. 8:00 - 16:00 Veitir

Um gagnasmiðjuna

Um gagnasmiðjuna Gagnasmiðjan...

  • Á Sólborg til hægri handar við inngang bókasafnsins
  • Opin alla virka daga kl. 8:00 - 16:00
  • Veitir aðstoð við tölvunotendur
  • Tekur við tilkynningum um bilanir á tölvu- og tækjabúnaði
  • Tekur við ábendingum um það sem betur má fara í þjónustu við nemendur
  • Aðgengi að sérhæfðum hugbúnaði, myndvinnsla o.fl.
  • Mögulegt að fá lánuð ýmis tæki, m.a. diktafóna og myndavélar
  • Aðstaða til að prenta í lit, gorma verkefni, skanna myndir, brenna á geisladiska o.fl.
  • Hægt að kaupa prentkvóta og ýmsar smávörur

Notendafræðsla
Eitt af hlutverkum gagnasmiðju er að stuðla að aukinni notkun tölvu- og upplýsingatækni í háskólanum og þar með að veita nemendum og starfsfólki ráðgjöf um sem flest á því sviði. Í því skyni er hægt að nálgast hér hagnýtar leiðbeiningar til að auðvelda nemendum og starfsfólki að vinna í tölvukerfi háskólans. Hér er einnig að finna upplýsingar um helstu breytingar og nýjungar á tölvukerfinu, sem og leiðbeiningar um ýmsan búnað á vegum gagnasmiðju.

Kennsla og ráðgjöf
Starfsmenn gagnasmiðju annast kennslu og þjálfun í notkun tækja, búnaðar og forrita háskólans. Þeir hafa einnig með höndum notendaþjónustu vegna tölvukerfis en hún er m.a. fólgin í aðstoð og ráðgjöf varðandi hugbúnað háskólans og notkun á honum. Gagnasmiðjan leiðir þróun í fjarkennslu skólans, er ábyrg fyrir fjarfundabúnaði hans og annast kynningar- og fræðslustarf við fjarnema og símenntunarmiðstöðvar.

Sérhæft tölvuver
Gagnasmiðjan er sérhæft tölvuver þar sem nemendur og starfsmenn hafa aðgang að öflugum tölvum, sérhæfðum tækjum og forritum. Hún annast innkaup, vörslu og útlán á hugbúnaði og tækjum í eigu háskólans. Starfsmenn gagnasmiðjunnar eru til staðar til liðveislu og ráðgjafar á opnunartíma. Hægt er að panta tíma til vinnu í gagnasmiðjunni vegna sérstakra verkefna. Þar er aðstaða til litprentunar, mynd-skönnunar og gormunar á verkefnum.

 

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Ingólfur Friðriksson

„Í lögfræðinni við HA fékk ég djúpan skilning á viðfangsefninu og tileinkaði mér öguð vinnubrögð.“

Ingólfur Friðriksson sérfræðingur á viðskiptasviði utanríkisráðuneytisins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf