Prentun, ljósritun og skönnun
Fjölnota vélar eru staðsettir á H-gangi (gangurinn sem tengir byggingarnar saman), á gagnasmiðju, bókasafni og
í anddyri Borga. Hægt er að prenta, skanna og ljósrita í þeim öllum nema Borgaprentaranum. Eini litaprentarinn er á Gagnasmiðju. Til
útprentunar þarf kvóta og er hægt að kaupa hann á gagnasmiðjunni. Hvert svarthvítt blað kostar 10 kr en litur 20 kr.
Ath - prentskipun er ekki send á ákveðinn prentara, heldur er hún geymd miðlægt, prentskipunin er svo sótt á einhvern prentarann með
því eigandinn ber HA snjallkortið sitt upp að lesara og velur svo prentverkið sitt. (sjá virkjun snjallkorta
neðar)
Prentvænar leiðbeiningar Kynningarmyndband
Hægt er að prenta úr fartölvum með því að setja upp prentarann með eftirfarandi hætti:
Í MAC tölvum - sjá leiðbeiningar hér.
Í PC tölvum - með því að fara inná my computer og slá þar inn (ath þetta eru öfug skástrik - AltGr+Ö). Þá kemur upp
innsláttargluggi, þar er slegið er inn HA netfang og lykilorðið og ætti prentarinn þá að vera tilbúinn til notkunar.
Kynningarmyndband Rekill fyrir WinXP Upplýsingar um snjallkortið
Virkjun HA snjallkorta til prentunar
í fyrsta sinn sem send er prentskipun, berst notenda lykilorð í tölvupósti. Það lykilorð þarf að slá inn á prentarann
í fyrsta sinn sem prentverk er sótt í hann eftir að búið er að bera HA snjallkortið upp að lesaranum. Eftir það er hægt að nota
kortið til að prenta út, ljósrita og skanna á fjölnota vélum skólans.


