Hvernig á að tengjast við HA netið með VPN - Mac Leopard
Hægt er að tengjast netkerfi Háskólans með VPN (Virtual Private Network) og fá þannig aðgang að gagnasöfnum líkt og tölvur sem
tengdar eru staðarneti Háskólans.
ATH
Nauðsynlegt er að setja upp VPN innhringingu á hverri tölvu fyrir sig og tengja í hvert
skipti sem nota á tenginuna og aftengja að notkun lokinni.
- Smella á Eplið sem er efst upp í vinstra horninu á skjánum
- Smella á System Preferences
- Smella á Network táknið í System Preferences glugganum
- Smella á + táknið neðst í vinstra horninu í Network glugganum
- Þá birtist nýr gluggi.
Í Interface velur þú VPN.
Í VPN Type velur þú PPTP.
Í Service Name reitnum skrifar þú valfrjálst heiti á tenginguna, t.d. HA VPN. - Smella á Create
- Núna sjást stillingarnar fyrir nýju VPN tengingun í Network glugganum.
Í Service Address skrifar þú vpn.unak.is
Í Account Name skrifar þú ha-netfangið þitt (haxxxxxx@unak.is)
Passa að hakið sé í reitnum fyrir framan Show VPN status in menu bar - Smella á Authentication Settings...
- Smella á Password
- Skrifa lykilorðið í Password reitinn. (Sama lykilorð og þú notar í ha-póstinn þinn)
- Smella á OK
- Smella á Advanced hnappinn og haka í Send all traffic over VPN connection. Smella á OK.
- Nú getur þú tengst með vpn aðgagninum þínum.
Myndrænt
Opna System Preferences.
Í System Preferences glugganum smella á Network táknið til að opna Network gluggann.
Smella á + táknið.
Velja VPN í Interface gardínuglugganum. Velja PPTP í VPN Type gardínuglugganum. Skrifa valfrjálst heiti á tenginguna í Service Name. Smella á Create.
Núna sjást stillingarnar fyrir nýju VPN tenginguna. Skrifa vpn.unak.is í Server Address. Skrifa ha-netfangið þitt í Account Name (haxxxxxx@unak.is). Passa að hakið sé í reitnum fyrir framan Show VPN status in menu bar
Smella á Authentication Settings... hnappinn.

Smella á Password hnappinn í Authentication Settings glugganum.
Skrifa lykilorðið í reitinn (Sama lykilorð og þú notar í ha-póstinn þinn). Smella á OK.
Smella á Advanced hnappinn og haka í Send all traffic over VPN connection. Smella á OK.
Nú getur þú tengst með vpn aðganginum þínum.


