Háskólinn á Akureyri

Afmćlisárgangar bođnir á Háskólahátíđ Þeir sem eiga 5, 10, 15 eða 20 ára brautskráningarafmæli frá

Afmćlisárgangar bođnir á Háskólahátíđ

Þeir sem eiga 5, 10, 15 eða 20 ára brautskráningarafmæli frá Háskólanum á Akureyri er boðið í móttöku Háskólahátíðar þann 11. júní næstkomandi af HA og Góðvinum. Þar verður boðið upp á kaffiveitingar og dagskrá.

Móttakan hefst að brautskráningu lokinni kl. 14:00 og stendur til kl. 16:00. Hún verður haldin í nýjum hátíðarsal Háskólans á Akureyri. Boðið gildir fyrir tvo. Þetta er tilvalið tækifæri til að hóa saman gömlu skólafélögunum og heimsækja háskólann. Í móttökunni mun forseti Íslands flytja ávarp, boðið verður upp á tónlistaratriði, styrkir úr Háskólasjóði KEA verða afhentir og fulltrúi 20 ára útskriftarnema flytur ávarp. Að dagskrá lokinni verður gestum boðið að ganga um háskólann og virða fyrir sér þær breytingar sem hafa orðið í gegnum árin, með eða án leiðsagnar.

Fyrir nánari upplýsingar má hafa samband við Dagmar Ýr Stefánsdóttur, forstöðumann markaðs- og kynningarsviðs og starfsmann Góðvina í síma 460-8009. Þeir sem hafa áhuga á að mæta eru beðnir um að skrá þátttöku sína eigi síðar en 7. júní á netfangið dagmar@unak.is.



Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Helga Sif Eiđsdóttir

„Viđskiptafrćđinámiđ í HA er krefjandi en jafnframt skemmtilegt og áhugavert. “

Helga Sif Eiđsdóttir viđskiptafrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf