Búið er að ráða veislustjóra fyrir brautskráningar- og endurfundaveisluna 13. júní n.k. en það verður enginn annar en fréttamaðurinn síkáti, Gísli Einarsson. Ekki er komin endanleg staðfesting á því hver mun sjá um tónlistina eftir matinn, en ef allt gengur eftir má lofa frábærri skemmtan þar einnig. Skráning er hafin á netfangið dagmar@unak.is. Hér að neðan gefur að líta matseðil kvöldsins.
Maturinn verður ekki af verra taginu frekar en fyrri daginn en það er Lostæti sem sér um að framreiða hann.
Smáréttir á hlaðborði :
Brauðsnitta með hráskinku og basilolíu
Brauðsnitta með anísgröfnu nautakjöti og parmesanosti
Brauðsnitta með saltfiski og Catalóníusósu
Brauðskeljar með graflax og sinnepssósu
Skeiðar með sjávarfantasíu
Brauðskeljar með laxatartar
Sjávarréttaskjóður
Grilluð kjúklingaspjót
Blönduð marsipanstykki
Vanillufylltar vatnsdeigsbollur
Ávaxtabakki
Hljómar vel, ekki satt?


