Aðalfundur 2007
Aðalfundur fyrir árið 2007 var haldinn 22. janúar 2008. Í skýrslu stjórnar sem Jóna Jónsdóttir, fráfarandi formaður kynnti kom fram, að á árinu 2007 var unnið að mörgum góðum verkefnum. Unnið var að öflun félaga í fyrirtækjatal, veitt voru heiðursverðlaun við brautskráningu, haldin var brautskráningarveisla og endurfundir, HA var gefinn flatskjár í tilefni af 20 ára afmæli skólans og í lok ársins var gefið út fréttabréf sem sent var til allra félagsmanna og afmælisárganga.
Að lokinni yfirferð á skýrslu stjórnar fór Rúnar Þór Sigursteinsson, gjaldkeri yfir reikninga samtakanna. Tap upp á rúmlega 282.000 kr. var á rekstrinum og helgast það aðallega af því að brautskráningarveisla og endurfundir voru með veglegra móti, auk þess sem ákveðið var að fresta útsendingu á greiðsluseðlum til félagsmanna fram yfir áramótin. Verða þeir sendir út í febrúar og á fundinum var ákveðið að halda félagsgjaldi óbreyttu eða 2.500 kr.
Á fundinum var tilkynnt að Rúnar Þór Sigursteinsson sem verið hefur gjaldkeri frá upphafi hefur ákveðið að hætta í stjórn. Einnig mun Jóna Jónsdóttir sem verið hefur formaður frá árinu 2004 hætta til að gerast starfsmaður samtakanna. Þeim eru þökkuð góð störf í þágu HA og Góðvina, en sæti þeirra taka Selma Sigurjónsdóttir (viðskiptafræðingur) og Valdimar Víðisson (skólastjóri).
Utan venjulegra aðalfundastarfa kynnti Ágúst Þór Árnason meistaranám í heimskautarétti (Polar Law) sem boðið verður upp á við HA frá haustinu 2008. Áhugasamir geta kynnt sér námið á www.polarlaw.is. Í lok fundar nutu gestir veitinga frá Lostæti, en þeir eru bakhjarlar Góðvina ásamt Sparisjóði Norðlendinga, Ásprent, Stefnu og Sjallanum.
Ræða formanns og reikningar
Fréttabréf Góðvina 2007 - síða 1
Fréttabréf Góðvina 2007 - síða 2


