Aðalfundur 2008
Aðalfundur fyrir árið 2008 var
haldinn 24. febrúar 2009 á lögfræðitorgi Háskólans á Akureyri. Eva Hrund Einarsdóttir, fráfarandi formaður flutti skýrslu
stjórnar og fór þar yfir verkefni Góðvina á árinu. Þar bar hæst undirbúning fyrir brautskráningarveislu og endurfundi sem fram
fóru í húsakynnum háskólans að kvöldi brautskráningardags og þótti takast með eindæmum vel. Einnig var unnið að
gerð nýrrar heimasíðu fyrir Góðvini sem verður tekin í notkun á árinu 2009.
Að lokinni yfirferð á skýrslu stjórnar fór Rúnar Þór Sigursteinsson, gjaldkeri yfir reikninga samtakana. Engar athugasemdir voru gerðar
við reikninga en þá má sjá hér að neðan í skjali sem nefnist Skýrsla stjórnar, reikningar og ný stjórn.
Kosið var í nýja stjórn en Eva Hrund gaf ekki áfram kost á sér sem formaður og Rúnar gaf ekki kost á sér sem gjaldkeri. Í
þeirra stað gáfu kost á sér Þuríður Jónasardóttir í stöðu formanns og Baldvin Esra Einarsson í stöðu
gjaldkera. Nánar má lesa um nýju stjórnina, varastjórn og fulltrúaráð í skjali hér að neðan.
Utan venjulegra aðalfundarstarfa og breytinga á samþykktum flutti Helga Hlín Hákonardóttir hdl., framkvæmdastjóri
lögfræðisviðs Saga Capital erindi um ábyrgð stjórna og stjórnarmanna hlutafélaga í kjölfar bankahrunsins og vanda fyrirtækja sem
hafa farið mikinn á liðnum árum.
Skýrsla stjórnar, reikningar og ný stjórn
Fundargerð aðalfundar 2008
Fréttabréf Góðvina 2008


