Háskólinn á Akureyri

Aðalfundur 2009 Aðalfundur fyrir árið 2009 var haldinn 25. mars 2010 í Háskólanum á Akureyri.

2009

Aðalfundur 2009

Aðalfundur fyrir árið 2009 var haldinn 25. mars 2010 í Háskólanum á Akureyri. Þuríður Jónasardóttir, fráfarandi formaður flutti skýrslu stjórnar og fór þar yfir verkefni Góðvina á árinu. Þar bar hæst undirbúning fyrir brautskráningarveislu og endurfundi sem fram fóru í húsakynnum háskólans að kvöldi brautskráningardags. Skráning á viðburðinn var undir væntingum en kostnaður fyrir félagið mjög mikill og því hefur stjórnin ákveðið að ekki skuli halda slíka veislu í ár, heldur beina kröftum félagsins inn á önnur svið. Þuríður kynnti einnig áherslubreytingar sem fyrirhugaðar eru hjá félaginu og ný stjórn mun vinna áfram með.

Að lokinni yfirferð á skýrslu stjórnar fór Selma Sigurjónsdóttir, varaformaður yfir reikninga samtakana í fjarveru gjaldkera. Engar athugasemdir voru gerðar við reikninga en þá má sjá hér að neðan í skjali sem nefnist Skýrsla stjórnar, reikningar og ný stjórn.

Kosin var í ný stjórn en Þuríður Jónasardóttir gaf ekki áfram kost á sér sem formaður, Selma Dögg gaf ekki kost á sér sem varaformaður og Baldvin Esra Einarsson gaf ekki kost á sér sem gjaldkeri. Í þeirra stað gáfu kost á sér Andrea Hjálmsdóttir í stöðu formanns, Ragnar Sigurðsson í stöðu varaformanns og gjaldkera og Oktavía Jóhannesdóttir í stöðu meðstjórnanda. Nánar má lesa um nýju stjórnina, varastjórn og fulltrúaráð í skjali hér að neðan.

Þá var einnig kjörið nýtt fulltrúaráð eftir að samþykktar höfðu verið breytingar á samþykktum félagsins sem snýr að ráðinu. Í nýtt fulltrúaráð svo kjörin: Rektor HA, Selma Dögg Sigurjónsdóttir, Margrét Blöndal, fulltrúi frá Akureyrarbæ og fulltrúi frá KEA.

Skýrsla stjórnar, reikningar og ný stjórn
Fundargerð aðalfundar 2009
Fréttabréf Góðvina 2009

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Ingólfur Friđriksson

„Í lögfrćđinni viđ HA fékk ég djúpan skilning á viđfangsefninu og tileinkađi mér öguđ vinnubrögđ.“

Ingólfur Friđriksson sérfrćđingur á viđskiptasviđi utanríkisráđuneytisins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf