Háskólinn á Akureyri

Aðalfundur 2010 Aðalfundur fyrir árið 2010 var haldinn 17. nóvember 2011 í Háskólanum á Akureyri.

Aðalfundir og fundargerðir

Aðalfundur Góðvina 2010Aðalfundur 2010

Aðalfundur fyrir árið 2010 var haldinn 17. nóvember 2011 í Háskólanum á Akureyri. Andrea Hjálmsdóttir formaður flutti skýrslu stjórnar. Stærstu verkefnin voru söfnun netfanga hjá meðlimum félagsins svo hægt sé að vera í sambandi við þá rafrænt. Þá gáfu Góðvinir, ásamt FSHA, háskólanum glæsilega veggklukku að gjöf í tilefni af opnun nýbyggingar í ágúst 2010.

Að lokinni yfirferð á skýrslu stjórnar fór Steinunn Aðalbjarnardóttir, fulltrúi háskólaráðs í stjórn Góðvina yfir reikninga samtakana í fjarveru gjaldkera. Engar athugasemdir voru gerðar við reikninga en þá má sjá hér að neðan í skjali sem nefnist Skýrsla stjórnar, reikningar og ný stjórn.

Kosin var í ný stjórn og í henni sitja: Andrea Hjálmsdóttir, formaður, Njáll Traustason, Eyrún Elva Marinósdóttir, Steinunn Aðalbjarnardóttir og fulltrúi FSHA. Nánar má lesa um nýju stjórnina, varastjórn og fulltrúaráð í skjali hér að neðan.

Stærsta breytingin sem verður á starfsemi félagsins og var samþykkt á aðalfundinum er að bjóða brautskráðum nemendum að ganga til liðs við félagið ári eftir brautskráningu í stað tveggja líkt og áður var, sjá nánar í fundargerð hér að neðan.



Skýrsla stjórnar, reikningar og ný stjórn
Fundargerð aðalfundar 2010
Fréttabréf Góðvina 2010

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Markús Jóhannesson

„Sjávarútvegsfræðin er áhugavert og hagnýtt nám sem opnar ýmsa atvinnumöguleika, ekki síst á alþjóðlegum vettvangi. “

Markús Jóhannesson sjávarútvegsfræðingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf