
Félagar í Góðvinum Háskólans á Akureyri teljast þeir sem greiða árgjöld samtakanna; einstaklingar og fyrirtæki. Námsmenn Háskólans á Akureyri eru undanþegnir félagsgjaldi. Greiðsla félagsgjalds þeirra hefst þegar tvö almanaksár eru liðin frá námslokum. Brautskráðir nemendur eru því félagar í Góðvinum í tvö ár eftir að þeir brautskrifast og fá send fréttabréf og aðar upplýsingar líkt og aðrir félagsmenn. Að þeim árum loknum er sendur valfrjáls greiðslueðill. Þeir sem kjósa að hafna aðild að Góðvinum geta gert það með því að senda tölvupóst á netfangið dagmar@unak.is. Greiðsluseðillinn er þá felldur niður og viðkomandi færður úr félagatali Góðvina.


