Góðvinir heiðra árlega við brautskráningu einn nemanda frá hverri deild. Verðlaunin eru gullnælur sem Kristín Petrea Guðmundsdóttir, gullsmiður hannaði sérstaklega fyrir félagið. Þann 10. júní 2006 efndu Góðvinir í fyrsta skipti til endurfunda í samstarfi við FSHA og er það nú orðin árlegur viðburður. Mörg fyrirtæki hafa stutt við Góðvini á einn eða annan hátt og er það markmið stjórnar að efla enn frekar fyrirtækjatal félagsins.
Eitt af markmiðum samtakana er að styðja við uppbyggingu háskólans eftir fremsta megni, ýmist með fjárstuðningi eða gjöfum. Þá er á hverju ári sent út fréttabréf þar sem farið er yfir starfsemi og viðburði ársins. Gömul fréttabréf má finna hér til hliðar.
Til að kynna ykkur nánar einstaka þætti í starfsemi Góðvina, smellið á tenglana hér til hliðar.


