Góðvinir eru samtök nemenda sem brautskráðir eru frá Háskólanum á Akureyri og annarra velunnara skólans. Markmið samtakanna eru
að auka tengsl skólans við fyrrum nemendur sína og styðja við uppbyggingu skólans eftir fremsta megni, fjárhagslega og á annan hátt.

Þetta gera Góðvinir m.a. með því að innheimta félagsgjöld, efna til endurfunda og útskriftarfögnuðar, heiðra afburðanemendur
við brautskráningu og safna fjármagni frá fyrirtækjum.
Í stjórn Góðvina árið 2010-2011 starfa eftirtaldir:
Andrea Hjálmsdóttir - formaður
Ragnar Sigurðsson - varaformaður og gjaldkeri
Oktavía Jóhannesdóttir - meðstjórnandi
Steinunn Aðalbjarnardóttir - fulltrúi HA
Birna Blöndal - fulltrúi FSHA
Dagmar Ýr Stefánsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi HA, er starfsmaður Góðvina
Þeir sem vilja skrá sig í samtökin eða leggja málefninu lið geta smellt hér og fyllt út rafrænt eyðublað.
Allar upplýsingar um starfsemi Góðvina veitir Dagmar Ýr Stefánsdóttir, dagmar@unak.is


