Þjónusta fyrir nemendur
Háskólinn veitir margskonar þjónustu fyrir nemendur sem þeir eru hvattir til þess að nýta
sér í námi sínu við HA. Starfsmenn háskólans er ávallt reiðubúnir til þess aðstoða nemendur og búa yfir
fjölbreyttri og margvíslegri þekkingu sem ætti að geta nýst öllum nemendum. Auk þess býður háskólinn upp á
fyrirtaksaðstöðu til þess að stunda nám með bókasafni, lesrými, tölvuaðstöðu og fleiru.
Náms- og starfsráðgjöf
Hlutverk náms- og starfsráðgjöfar felst í margvíslegri þjónustu og stuðningi
fyrir nemendur háskólans. Felst sú þjónusta m.a. í því að leiðbeina núverandi og væntanlegum nemendum um val á
námi, að veita einstaklingum og hópum ráðgjöf og leiðsögn á meðan á námi stendur, ekki síst um bætt
vinnubrögð í námi og að veita nemendum persónulega ráðgjöf um námsframvindu og einkalíf. Inn á vefsíðu náms-
og starfsráðgjafar hjá háskólanum má finna allar upplýsingar um þá þjónustu sem er í boði fyrir nemendur og hvernig
er best að hafa samband við ráðgjafa, hana má nálgast hér.
Stefna um jafnt aðgengi að námi og störfum við HA
Háskólinn á Akureyri leggur áherslu á það að tryggja öllum nemendum jafnan og
greiðan aðgang að námi og aðstöðu til þess að stunda sitt nám. Til þess hefur háskólinn sett sér stefnu um jafnt aðgengi að námi og störfum við Háskólann á Akureyri sem taka
þarf mið af við alla ákvarðanatöku, námsuppsetning og skipulagsbreytingar innan háskólans. Markmið stefnunnar er að bjóða upp
á fyrsta flokks menntun óháð kyni, aldri, kynþætti og líkamlegrar og andlegrar stöðu. Til þess hefa verið þróuð
sértæk úrræði er snúa að aðstæðum og aðbúnaði á kennslutíma, og snerta ýmsar hliðar náms og
kennslu og prófúrræði er snúa að próftöku nemenda sem þurfa á sértækri þjónustu að halda. Náms- og
starfsráðgjafi hefur umsjón með málefnum nemenda með sérþarfir og fatlanir.
Alþjóðaskrifstofan
Alþjóðaskrifstofan annast formleg samskipti milli Háskólans á Akureyri og erlendra menntastofnana og
veitir nemendum ýmsa þjónustu varðandi alþjóðlegt samstarf. Hún hefur yfirumsjón með nemendaskiptum við erlenda háskóla og
þátttöku í alþjóðlegu samstarfi s.s. Erasmus, Nordplus og North2North.
Háskólinn hefur einnig gert tvíhliða samninga við nokkra háskóla austanhafs og vestan sem bjóða nemendum upp skiptinám sín á
milli. Ef þú hefur áhuga á þvi að fara sem skiptinemi endilega kíktu á síðu Alþjóðatengsla innan
háskólans, þar sem þú færð allar þær upplýsingar sem þú þarft varðandi skiptinám, nám erlendis og
þá styrki sem eru í boði.
Nemendaskrá og þjónustuborð
Nemendaskrá heldur utan um innritun nýnema og skráningar nemenda í námskeið og próf,
allar upplýsingar varðandi skráningar í námskeið og próf má nálgast hér.
Nemendaskráin er staðsett á 1. hæð A-gangs og er opin 8-16 alla virka daga, sími: 460 8000. Þjónustuborð nemendaskrár er í
Miðborg inn af aðalinngangi skólans. Á þjónustuborði má nálgast ýmis skjöl svo sem vottorð um
skólavist og staðfest afrit af námsferlum og prófskírteinum. Opnunartími er alla virka daga frá 8 - 16, sími: 460 8040.
Skrifstofur fræðasviða
Skrifstofur fræðasviða annast m.a. skráningu vegna náms nemenda og skipan kennslu og fræðasviða.
Einnig veitir starfsfólk nemendum upplýsingar um starfsemi fræðasviðsins, einkum þá þætti er varða skipan náms og
kennslu.
Bókasafn
Á bókasafni Háskólans á Akureyri er margvísleg þjónustu fyrir nemendur á sviði gagnaöflunar og
upplýsingatækni. Á vef bókasafnsins má finna aðgang að fjölbreyttum rafrænum gagnsöfnum og
tímaritum á fræðasviðum háskólans sem ættu að nýtast nemendum vel í náminu.
Bókasafnið býður einnig upp á forrit og aðstoð varðandi ritgerða- og verkefnavinna. Nemendar hafa meðal annars aðgang að forritinu Refworks sem nýtist mjög vel við vinnslu heimildaritgerða og starfsmenn bókasafnsins búa yfir yfigripsmikilli þekkingu varðandi heimildarvinnu og verkefnagerð sem nemendur ættu endilega að nýta sér.
Alla virka daga milli 8.00 og 16.00 eru starfandi bókasafns- og upplýsingafræðingur til aðstoðar við nemendur við gagnaöflun.Allar nánari upplýsingar um safnið og þjónustu þess má nálgast á opnunartíma safnsins, einnig er hægt að hringja í síma 460 8055/460 8050 eða senda fyrirspurnir í tölvupósti bsha@unak.is.
Gagnasmiðjan
Í gagnasmiðjunni er nemendum veitt margvísleg þjónusta. Starfsmenn þar veita nemendum aðgang að
sérhæfðum tækjakosti, hugbúnaði og leiðsögn sem gerir þeim kleift að hagnýta upplýsingatækni við námið.
Gagnasmiðjan er staðsett í G – álmu, fyrir framan bókasafnið og er opin frá 8 – 16, alla virka daga, sími. 460 8070 og hafa má
samband við Gagnasmiðjuna á gagn@unak.is.
Tölvuaðgengi
Tölvubúnaður Háskólans á Akureyri (HA) og samstarfsstofnana hans er eign HA og er einungis
ætlaður til rannsókna, náms, kennslu, kynningar og annars sem samræmist markmiðum HA. Kerfisstjóri HA hefur yfirumsjón með öllum
tölvubúnaði háskólans og samstarfsstofnana hans. Til viðbótar við sérreglur HA er vísað til notkunarskilmála
Isnets, notkunarreglna Íslenska menntanetsins og almennra netbúasiða. Notendur kerfisins skulu kynna sér þessar reglur þar sem þeir eru ábyrgir
samkvæmt þeim.
Allar nánari upplýsingar varðandi tölvuaðgang og notkun má fá hjá Gagnasmiðjunni á vefnum, á opnunartíma alla virka daga frá 8.00 – 16.00 eða í síma 460 8070 og netfang gagn@unak.is.


