Háskólinn á Akureyri

Húsnæði Það fyrsta sem þarf að huga að þegar flutt er í bæinn er að finna

Húsnćđismál

Húsnæði
Það fyrsta sem þarf að huga að þegar flutt er í bæinn er að finna sér húsnæði við hæfi. Leit að húsnæði og gerð leigusamninga geta oft verið flókin, því er gott að vita hvert skuli leita og hver réttindi leigjenda eru í slíkum samningum. Meðfylgjandi eru því leiðbeiningar um hvar er hægt að leita sér húsnæði og hvernig skuli staðið að gerð leigusamninga, auk þess hvernig sækja skal um húsaleigubætur og hvaða skilyrði þarf að uppfylla til þess að fá slíkar bætur.

FÉSTA
Félagsstofnun stúdenta við Háskólann á Akureyri (FÉSTA) sér um rekstur stúdentagarða þar sem nemendur við háskólann geta leigt sér íbúðir á meðan námi stendur. Úr talsverðu úrvali íbúða er að velja bæði hvað varðar stærð og staðsetningu. Umsóknarfrestur fyrir  íbúð á stúdentagörðum er til og með 20. júni fyrir næstkomandi skólaár. Við úthlutun íbúða er farið eftir punktakerfi skv. úhlutunarreglum og þeir sem ekki hljóta íbúð við fyrstu umsókn fara á biðlista. Hér má svo finna umsóknareyðublöð á pdf. og excel.   

Leiguíbúðir á opnum markaði
Nemendur geta einnig leigt íbúðir á opnum markaði. Algengast er að auglýsingar fyrir leiguíbúðir á Akureyri sé að finna í smáauglýsingum í dagskráinni, en einnig má finna íbúðir á fasteignasíðum helstu fjölmiðla landsins s.s. www.visir.is og www.mbl.is.

Húsaleigubætur
Húsaleigubætur eru greiddar til leigjenda að uppfylltum ákveðnum skilyrðum og er markmiðið með greiðslu bótanna að lækka húsnæðiskostnað tekjulágra leigjenda og draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaði.

Þeir nemendur sem eru á námslánum eiga því rétt á fullum húsaleigubótum þar sem þær miðast við tekjur leigjenda. Það þarf þó að hafa í huga að húsleigubætur miðast við tekjur allra aðila sem leigja húsnæðið. Mikilvægt atriði varðandi húsaleigubætur er að nauðsynlegt er að þinglýsa húsaleigusamningnum hjá sýslumanni og sækja þarf um húsaleigubætur fyrir 10. hvers mánaðar til þess að fá greiddar húsaleigubætur fyrir þann mánuð. Þar sem oft getur tekið nokkra daga að þinglýsa samningi er mikilvægt að ganga strax frá þinglýsingu ef leigusamningur er undirritaður um mánaðarmót til þess að ná að skila inn umsókn til húsaleigubóta fyrir þann 10.

Umsóknareyðublað fyrir húsaleigubætur má nálgast á heimasíðu Akureyrarbæjar. Jafnframt má nálgast upplýsingar á heimasíðu félagsmálaráðuneytisins www.stjr.is en þar er hnappur fyrir húsaleigubætur. Umsóknareyðublöð, lög og reglugerðir um greiðslu húsaleigubóta liggja frammi í Þjónustuanddyri að Geislagötu 9 og má skila umsóknum þangað eða póstsenda á Húsnæðisdeild Akureyrar, Geislagötu 9.

Réttindi og skyldur leigjenda
Réttindi og skyldur leigjenda eru útlistaðar í húsaleigulögum nr. 36/1994. Góð regla er að renna yfir lögin áður en gerður er samningur, þau eru stutt og skiljanleg. Nokkur atriði er þó ávallt gott að hafa í huga. Ávallt gera skriflegan leigusamning og helst hafa einhvern með þér sem hefur reynslu af slíkum samningum þegar hann er undirritaður. Varast að leggja fram greiðslur eða tryggingu fyrr en við undirskrift, óhætt er þó í sumum tilfellum að leggja fram tryggingu fyrirfram þar sem það er nauðsynlegt til þess að tryggja leigurétt eins og t.d. hjá FÉSTA. Sjá um frekari réttindi og skyldur leigenda í húslaleigulögunum.

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Gústaf Línberg Kristjánsson

„Sjávarútvegsfrćđi er ţverfaglegt nám sem gefur möguleika á fjölbreyttu meistaranámi.“

Gústaf Línberg Kristjánsson nemandi í sjávarútvegsfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf