Akureyri
Á Akureyri búa rúmlega 17.000 manns og hér má finna alla þá þjónustu og
lífsgæði sem búast má við í nútímasamfélagi, án þess þó að Akureyri glati kostum
smábæjarlífisins sem einkennist af rólegum og góðum anda, litlu stressi og námunda við náttúruna. Akureyrarbær er barna- og
fjölskyldvænn staður með úrvals skólum og virku og fjölbreyttu tómstundastarfi þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi,
börn jafnt sem fullorðnir. Stutt er á milli staða og því tilvalið að hjóla og ganga milli heimilis, vinnu og skóla. Einnig er stutt er í
náttúruna og sveitina þar sem hægt er að njóta á sólríkum dögum enda Norðurland víðfrægt fyrir sín
sólríku sumur, sem og snjóríka vetur sem ætti að gleðja alla vetraríþróttamenn.
Þjónusta
Á Akureyri má finna mest af þeirri þjónustu sem kröfur eru gerðar um í
nútímasamfélagi fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Framúrskarandi mennta-, heilbrigðis- og félagskerfi gerir Akureyri að ákjósanlegum
stað til þess að búa á. Auk þess er mikil gróska í lista- og menningarlífi bæjarins og fjölbreytt tómstunda- og
íþróttalíf ætti að gefa öllum færi á að finna eitthvað við sitt hæfi. Á vefsíðu Akureyrar má finna þá þjónustu sem bærinn
býður íbúum sínum.
Heilbrigðisþjónusta
Mjög góða heilbrigðisþjónustu má finna á Akureyri, enda er hér miðja þeirrar
þjónustu fyrir allt Norðurland. Hér er staðsett Sjúkrahúsið á Akureyri sem þjónar stóru landssvæði og er hið
stærsta sinnar tegundar utan höfuðborgarsvæðisins, auk heilsugæslu fyrir alla íbúa svæðisins. Meiri upplýsingar varðandi
heilbrigðisþjónustu á Akureyri má finna hér.
Samgöngur
Mjög þægilegt og auðvelt er að koma sér milli staða á Akureyri enda er stutt á milli
flestra staða og auðvelt er að ganga eða hjóla milli skóla, vinnu og heimilis. Það er einnig gríðarlegur kostur að frítt er að
ferðast með strætó á Akureyri, leiðakerfi strætó má nálgast hér.
Góðar samgöngur eru til og frá Akureyri. Flugfélag Íslands flýgur reglulega nokkrum sinnum á dag milli Akureyrar og Reykjavíkur. Einnig er fjöldi áætlunarferða með rútu, hvort sem er milli Akureyrar og höfuðborgarsvæðisins eða annarra staða á landsbyggðinni.
Listir og Menning
Á Akureyri er lifandi og skemmtilegt lista- og menningarlíf. Í Gilinu má finna fjölda sýningarsala
og vinnustofur listamanna sem reglulega bjóða upp á fjölbreyttar og áhugaverðar sýningar þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi og í lok ágúst 2010 var opnað glæsilegt menningarhús Akureyrar, Hof, þar sem fjölbreyttir tónleikar og
leiksýningar og listviðburðir verða í boði fyrir bæjarbúa. Við það má bæta að hið víðfræga
Leikfélag Akureyrar bíður ávallt upp á skemmtilegar og áhugaverðar sýningar á hverjum vetri og standa nemendum til boða
afsláttarkort í leikhúsið.
Menningarmiðstöðin Listagil heldur úti vef þar sem nálgast má dagskrá yfir menningarviðburði sem eru á Akureyri hverju sinni, hana má nálgast hér. Einnig má nálgast lista og tengla á helstu söfn bæjarins hér.
Á vefsíðu Leikfélags Akureyrar er hægt að sjá hvaða sýningar eru áætlaðar.
Útivist og Tómstundir
Akureyri má lýsa sem útivistarparadís enda er hér allt til alls, úrvals sundlaug og
fjölbreytt íþróttamannvirki, fyrirtaks skíðaaðstaða í Hlíðafjalli, skautahöll, og nokkrar heilsuræktarstöðvar. Einnig
eru útivistarsvæði í náttúrunni örskammt frá líkt og Kjarnaskógur. Stórir sem smáir ættu því að
geta notið þess að stunda íþróttir og heilsurækt á Akureyri. Á vefsíðu Akureyrar má finna upplýsingar um flest það sem
bæjarfélagið hefur upp á að bjóða varðandi útivist og tómstundir.


