Háskólinn á Akureyri

Misferli og brot á reglum Samkvæmt 2. mgr. 19. gr. í  Lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008 skal nemandi

Misferli og brot á reglum háskólans

Misferli og brot á reglum
Samkvæmt 2. mgr. 19. gr. í  Lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008 skal nemandi forðast að hafast nokkuð það í námi sínu eða framkomu sinni innan eða utan skólans sem er honum til vanvirðu eða álitshnekkis eða getur varpað rýrð á nám hans eða skóla. Hér er um frekar opna lagagrein að ræða sem hægt er að túlka á ýmsan hátt. Það sem nemendur ættu að hafa í huga varðandi þetta ákvæði er að fylgja þeim leiðbeiningum sem þeim er veitt af skólanum og hafa siðareglur háskólans í huga.

Viðurlög við slíkri háttsemi sem fjallað er um að ofan eru ákveðin af rektor, en hann hefur heimild til þess að veita nemanda áminningu eða víkja honum úr skóla um tiltekinn tíma eða að fullu. Áður en slík ákvörðun er tekin á nemandi að hafa rétt að því að tjá sig um málið. Nemanda er einnig heimilt að skjóta ákvörðuninni fyrir áfrýjunarnefnd (um nefndina er fjallað í sér kafla seinna í handbókinni).

Siðareglur Háskólans á Akureyri
Háskólinn á Akureyri er samfélag nemenda og starfsfólks sem byggir á réttlæti, virðingu og ábyrgð. Í anda þessarra gilda hefur háskólinn samþykkt siðareglur þar sem settar eru fram siðferðislegar skuldbindingar meðlima háskólasamfélagsins. Mikilvægt er að nemendur og kennarar hafi þessar reglur ávallt í huga við störf sín og samskipti við aðra innan háskólans.

Ritstuldur
Sérstakar reglur eru til um ritstuld. Segir þar m.a. að  ritstuldur sé þegar nemandi hagnýtir sér í heimildarleysi hugverk annarra. Er þá átt við að afrita beint eða óbeint texta úr ritsmíð annars og setja í sína eigin án þess að geta heimildar. Ef grunur liggur á ritstuldi ber að skipa siðanefnd sem skera skal úr um hvort um ritstuld er að ræða. Ef nemandi telst hafa beitt ritstuldi skal honum vera veitt áminning og einkunn hans dregin niður eða þátttaka hans í viðkomandi námskeiði felld niður. 

 

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Jóhanna Guđrún S. Magnúsdóttir

„Öll ákvarđanataka í HA er vel kynnt nemendum og tekin međ hagsmuni ţeirra ađ leiđarljósi.“

Jóhanna Guđrún S. Magnúsdóttir nemandi í lögfrćđi
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf