Háskólinn á Akureyri

Að mörgu þarf að huga þegar kemur að því sjá um fjölskyldu og eru námsmenn þar engin

Nám og fjölskyldulíf

Að mörgu þarf að huga þegar kemur að því sjá um fjölskyldu og eru námsmenn þar engin undantekning. Því eru hér meðfylgjandi upplýsingar um þau réttindi sem fjölskyldufólk hefur meðan það er í námi og leiðbeiningar um hvernig skuli bera sig að til þess að nálgast þau. Einnig fylgja með upplýsingar um leik- og grunnskóla á Akureyri.

Barnabætur
Barnabætur eru greiddar með börnum fram til 18 ára aldurs.Við ávörðun barnabóta er miðað fjölskyldustærð eins og hún var 31. desember, árið á undan greiðsluári en breytingar innan þess árs hafa ekki áhrif. Þannig fær sá sem hafði barnið hjá sér í lok ársins á undan greiðsluári barnabæturnar og skiptir þá ekki máli hvort barnið hafi verið á framfæri hans allt árið eða aðeins hluta úr ári.

Barnabætur eru að mestu tekjutengdar en ekki eignatengdar. Þær eru ákvarðaðar samkvæmt skattframtali og greiddar eftir á, þó er hægt að sækja um að fá fyrirframgreiðslu fyrir allt að 50% heildarupphæðar barnabóta. Slík fyrirframgreiðsla er greidd í tveimur jöfnum greiðslum 1. febrúar og 1. maí. Fyrirframgreiðslur miðast við upplýsingar úr staðgreiðsluskrá um launatekjur framfæranda. Fyrirframgreiðslan dregst síðan frá heildarupphæð barnabóta sem ákvarðast við álagningu í ágúst. Barnabætur hjóna, para í staðfestri samvist og í skráðri sambúð skiptast á milli þeirra og kemur sameiginlegur tekjustofn beggja aðila til skoðunar við ákvörðun barnabóta. Einstæðir foreldrar fá greiddar óskiptar barnabætur með börnum sem þeir hafa á framfæri. Merkja þarf sérstaklega við það á skattaframtali að um einstætt foreldri sé að ræða. Þegar foreldrar hafa sameiginlegt forræði fær sá aðili barnabæturnar sem barnið hefur lögheimili hjá. Barnabætur eru ekki skattskyldar tekjur og ákvarðast sjálfkrafa út frá skattframtali.

Nánari upplýsingar varðandi barnabætur má nálgast í 68. gr. Laga um tekjuskatt nr. 90/2003  og á vefsvæði Ríkisskattstjóra www.rsk.is þar sem m.a. má finna reiknivél til þess að reikna út barnabætur.

Fæðingarstyrkur til foreldra í námi
Foreldrar sem hafa verið í fullu námi í sex mánuði af tólf mánuðum fyrir fæðingu barns, frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur og sýnt fram á viðunandi námsárangur hafa rétt á fæðingarstyrk, skv. Lögum um fæðingar- og foreldraorlof nr. 95/2000. Fæðingarstyrkurinn miðast við þrjá mánuði á hvort foreldrið að viðbættum þremur mánuðum sem foreldrarnir geta ráðstafað sín á milli.

Við umsókn til fæðingarstyrks þarf að sýna fram á vottorð um skólavist og viðunandi námsárangur, auk þess þarf viðkomandi foreldri að sýna fram á að hafa haft lögheimili á Íslandi 12 mánuði fyrir fæðingu, þó eru ákveðnar undantekningar varðandi lönd innan EES. Hægt er að fá fæðingarstyrk eftir einnar annar nám að því gefnu að foreldri hafi unnið á innlendum vinnumarkaði samfellt í sex mánuði áður en nám hófst. Einnig má greiða fæðingarstyrk þó ekki hafi verið um fullt nám að ræða þegar foreldri er að ljúka við prófgráðu og tillit er tekið til viðmiða um námsárangur þegar foreldri hefur ekki getað stundað nám að fullu á meðgöngu vegna meðgöngutengdra heilsufarsástæðna.

Umsókn um fæðingarstyrk þarf að berast Fæðingarorlofssjóði minnst þremur vikum fyrir áætlaðan fæðingardag. Umsóknin er sameiginleg fyrir verðandi foreldra sæki þeir báðir um greiðslur. Eyðublöð vegna umsóknar má finna hér. Nánar um réttindi og skyldur foreldra má finna í lögum nr. 95/2000 

Foreldrar og LÍN
Fjölskyldufólk í námi á rétt á hærri grunnframfærslu vegna framfærslu barna og jafnframt eiga námsmenn sem greiða meðlag rétt á viðbótarláni til þess að standa straum af þeim meðlagsgreiðslum. Eignist námsmaður barn á námstímanum eða barn veikist á námstíma eiga foreldrar rétt á auknu svigrúmi hvað varðar lágmarksnámsárangur sem skilyrði fyrir námsláni. Skilyrði er að námsmaður skili fullnægjandi námsárangri á misserinu eftir að hann þarf á svigrúminu að halda. 

Reglur um úthlutunarreglur LÍN má finna hér.

Veikindi barna á prófatíma
Veikist barn námsmanns á prófatíma gilda sömu reglur og ef námsmaðurinn hefði veikst sjálfur. Veikindin ber að tilkynna til nemendaskrár og skila læknisvottorði innan fimm daga.

Leikskólar
Við námsmannaíbúðir í Tröllagili er leikskóli sem rekinn er af Félagsstofnun stúdenta (FÉSTA) og Akureyrarbæ. Umsóknir í þann leikskóla er að finna hjá FÉSTA.

Hjá Akureyrarbæ er hægt að sækja um leikskólavist á mörgum leikskólum. Upplýsingar um leikskólana má finna hér. Um rétt til leikskólavistar hjá Akureyrarbæ gilda ákveðnar reglur sem mikilvægt er að kynna sér áður en farið er í að sækja um leikskólapláss. Samkvæmt þeim reglum hafa allir foreldrar sem hafa lögheimili á Akureyri rétt til leikskólavistar á vegum sveitarfélagsins. Hægt er að fá undanþágu frá lögheimiliskilyrðinu til tímabundinnar leikskólavistar t.d. vegna námsdvalar foreldra. Almennt eiga börn rétt á leikskólaplássi frá tveggja ára aldri, það getur þó verið breytilegt eftir því hvenær tekið er inn í leikskólana og öðrum aðstæðum. Reglurnar í heild sinni má líta hér og rafræna umsókn um leikskólavist má finna hér

Dagforeldrar
Hægt er að setja börn í dagvist hjá dagforeldrum áður en þau ná þeim aldri að hafa rétt á leikskólaplássi samkvæmt reglum Akureyrar um rétt að leikskólaplássi. Dagforeldrar eru sjálfstæðir verktakar sem starfa með og undir eftirliti skóladeildar Akureyrarbæjar. Til þess að geta starfað sem dagforeldri verða viðkomandi að uppfylla skilyrði reglugerðar um daggæslu í heimahúsi nr. 907/2005.
Foreldrar sjá sjálfir um að velja sér dagforeldra, á vefsíðu Akureyrarbæjar er að finna upplýsingar um allt varðandi dagforeldra og leiðbeiningarum það hvernig er best að bera sig að í vali á dagforeldri. Greiðslur til dagforeldra eru ákveðnar samkvæmt samningi við Akureyrarbæ og allir foreldrar greiða sömu upphæð fyrir gæsluna. Hægt er að fá gjöldin niðurgreidd af sveitarfélaginu skv. sérstökum reglum. Allar upplýsingar varðandi niðurgreiðslu má finna hér.

Grunnskólar
Á Akureyri eru fjölmargir mjög góðir grunnskólar með hátt hlutfall menntaðra kennara. Hér
má finna rafræna umsókn um grunnskóla og umsóknareyðublöð.

 

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Ingólfur Friđriksson

„Í lögfrćđinni viđ HA fékk ég djúpan skilning á viđfangsefninu og tileinkađi mér öguđ vinnubrögđ.“

Ingólfur Friđriksson sérfrćđingur á viđskiptasviđi utanríkisráđuneytisins
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf