Háskólinn á Akureyri

Námsmatsreglur Námsmat við Háskólann á Akureyri fer fram sem símat, lokamat eða sem sambland af

Námsmatsreglur

Námsmatsreglur
Námsmat við Háskólann á Akureyri fer fram sem símat, lokamat eða sem sambland af þessum tveim námsmatsleiðum. Námsmatsaðferðir í hverju námskeiði fyrir sig eiga að  koma fram í kennsluáætlun. Eftir að námskeið er hafið þarf samþykki allra nemenda og kennara viðkomandi námskeiðs til þess að breyta tilhögun námskeiðismatsins. Allar upplýsingar varðandi próftöku má finna hér, og eru allir nemendur hvattir til þess að kynna sér þær upplýsingar.

Símat
Með símati er átt við þegar námsmat fer fram utan reglulegrar próftíðar. Það er m.a. framkvæmt með símatsprófum, ritgerðum, munnlegum og skriflegum skýrslum, dagbókum, námsmöppum, eða þátttöku í kennslustundum. Þegar símati er beitt við námsmat má enginn einstakur matsþáttur vega meira en 50% af heildareinkunn. Leitast er við að samræma skiladaga og próf innan hverrar deildar og að hafa símatsþætti reglulega yfir námsmisserið til þess að álag á nemendur og mat á hverjum námsþætti dreifist yfir hverja önn.

Lokamat
Lokamat er þegar námsmatið felst í formlegu mati í lok misseris, svo sem próf í reglulegri próftíð, ritgerð, málstofu, vörn eða mat á verklegu námi.

Kennsluáætlun
Kennsluáætlanir eru ætlaðar til upplýsinga fyrir nemendur um það hvernig og hvenær og hvar kennsla fer fram. Ennfremur hvaða kröfur eru gerðar til nemenda til þess að þeir geti staðist viðkomandi námskeið, hvaða námsgögn nemendur þurfi að útvega og hvernig námsmat skuli fara fram. Skv ákvörðun gæðaráðs vorið 2010 var skal kennsluáætlun hvers námskeiðs liggja fyrir einni viku fyrir upphaf kennslu í námskeiði.

Próftíðir og skráning í próf
Regluleg próftíð er haldin í lok hvers misseris í desember og apríl/maí. Drög að próftöflu skulu liggja fyrir eigi síðar en viku eftir upphaf misserisins. Endanleg próftafla skal liggja fyrir áður en frestur til að staðfesta skráningu í námskeið rennur út. Að lokinni reglulegri próftíð eru haldin sjúkra- og endurtökupróf vegna viðkomandi próftíðar. Tímasetning þeirra er ákvörðuð af háskólaráði og birt í almanaki háskólans.

Skráning
Í upphaf hvers misseris staðfesta nemendur skráningu sína í þau námskeið sem þeir sækja, sú staðfesting gildir sem skráning í próf námskeiðisins. Þeir nemendur sem hyggjast skrá sig úr prófi í námskeiði sem þeir eru þegar skráðir í nota sama eyðublaðið og til að skrá sig í námskeið. Til þess að slík skráning sé tekin gild þarf hún að vera undirrituð. Á umsóknareyðublaðinu skal tilgreina nafn, kennitölu, námskeiðsnúmer, námskeiðsheiti og misseri. Vanræki nemandi að skrá sig úr prófi sem hann hyggst ekki þreyta jafngildir það falli á prófinu. Allar dasetningar vegna skráninga úr og í námskeið er hægt að finn í almannaki háskólanshér.

Veikindi á prófdegi
Ef nemandi er veikur á prófdegi ber honum að tilkynna sig veikan með símtali til afgreiðslu HA (sími 460 8000) áður en prófið hefst. Læknisvottorði skal skilað til afgreiðslu við fyrstu hentugleika og eigi síðar en fimm virkum dögum eftir að próf var haldið, annars telst nemandinn hafa þreytt prófið og fær einkunnina 0. Það sama gildir ef nemandi mætir ekki í próf vegna veikinda barns. Athugið að slík veikindatilkynning jafngildir ekki að nemandinn sé sjálfkrafa skráður í sjúkra- og endurtökupróf heldur þarf nemandinn að skrá sig sérstaklega í það. Sjá um skráningu í slík próf hér.           

Endurtöku- og sjúkrapróf
Nemendur sem ekki hafa náð lágmarkseinkunn eða verið fjarverandi í prófi án lögmætra forfalla eiga rétt á að taka endurtökupróf, en þó aðeins einu sinni í viðkomandi lokaprófi eða símatsþætti. Nemandi sem hefur náð tilskilinni lágmarkseinkunn hefur rétt á því að þreyta endurtökupróf en þá gildir sú einkunn er næst úr endurtökuprófinu.

Skráning í endurtöku- og sjúkrapróf fer fram á Stefaníu með því að fylla inn rafrænt eyðublað, meðfylgjandi eru leiðbeiningar um skráninguna. Innritun og greiðsla fyrir sjúkra- og endurtökupróf skal vera lokið eigi síðar en einni viku fyrir áætlaðan próftíma, enda hafi umsjónarkennari þá skilað inn einkunn úr reglulegu prófi. Tekið er prófgjald að andvirði 6000,- kr. fyrir öll endurtökupróf og þurfa nemendur að hafa greitt gjaldið eigi síðar en einni viku fyrir áætlaðan próftíma, annars telst skráning ekki gild.
Ekki þarf að greiða fyrir sjúkrapróf svo framarlega sem nemandi hafi skilað inn vottorði vegna þess prófs.

Próftökustaður
Nemendur taka próf á sínum kennslustað en geta óskað eftir að fá að taka prófin á öðrum próftökustöðum sem háskólinn hefur skilgreint. Slíkar beiðnir eru gerðar með því að fylla út rafrænt eyðublað í Stefaníu. Á því eyðublaði kemur fram hvaða prófstaðir standa til boða. Sækja þarf um slíka breytingu fyrir 15. nóvember á haustmisseri og 10. apríl á vormisseri. 

Nemendur sem hafa undanþágur vegna sérstakra námsörðugleika skulu hafa samband við námsráðgjafa (460 8034) áður en slík beiðni er send. Ekki er tryggt að hægt sé að verða við öllum undanþágubeiðnum á öllum prófstöðum.

Við skráningu í sjúkra- og endurtökupróf getur nemandi í leiðinni sótt um breyttan próftökustað (athugið að flestir próftökustaðir innheimta sérstakt próftökugjald).

Undanþágur og sérúrræði í prófum
Nýskráningar og endurnýjun eldri skráninga varðandi undanþágur um sérstök prófúrræði þurfa að berast eigi síðar en einum mánuði fyrir upphaf próftíðar á póstfangið radgjof@unak.is

Breytingarbeiðnir og árekstrar í próftöflu
Það kemur fyrir að nemandi lendi í því að eiga í erfiðleikum með að taka próf eða hafa ónógan tíma til undirbúnings milli prófa vegna þess hve stutt er á milli þeirra. Þegar próftaflan er samin reynt eftir fremsta megni að raða námskeiðum á sama ári á sömu próftíma. Það er gert með það í huga að sem minnstir árekstrar verði í próftöflu og til þess að gefa nemendum nægan upplestrartíma milli prófa. Þó geta ávallt komið tilvik þar sem árekstur verður í próftöflu. Í slíkum tilfellum er hægt að senda inn beiðni um breytingu á próftöflu til prófstjóra, frestur til þess að senda inn slíka athugasemd er vika eftir birtingu próftöflunnar.

Til þess að breyting verði gerð á próftöflu eftir athugasemdafrest þarf samþykki allra nemenda og kennara námskeiðis til þess mögulegt sé að breyta próftöflu í samræmi við beiðnina.

Um framkvæmd prófa er getið til hlýtar í námsmatsreglum HA sjá hér.Nemendur eru hvattir til að kynna sér þær ítarlega. 

Einkunnir
Lokaeinkunn fyrir námskeið er reiknuð út af umsjónarkennara viðkomandi námskeiðs. Í þeim tilfellum sem kallaður er til prófdómari gildir einkunn hans 50% á móti einkunn umsjónarkennara. Lágmarkseinkunn til þess að standast námsmat eða námsmatsþátt er aldrei lægri en 5.

Nemandi á rétt á að fá útskýringar kennara á skriflegu prófi ef hann fer fram á það innan við 15 daga frá birtingu einkunna. Útskýringar kennara þurfa að fela í sér sundurliðun á einkunn og útskýring á hverri einkunn, þar með talið fyrir hverja spurningu í prófi.
Umsjónarkennari námskeiðs skal sjá til þess að einkunnir berist skristofustjórum fræðasviða eigi síðar en á tólfta virka degi eftir prófdag og tiltekur þá sýnidag prófúrlausna.

Vilji nemandi ekki una útskýringum kennara hefur hann rétt á því að fara fram á skipun prófdómara með skriflegri beiðni til forseta fræðasviðis innan fjögurra vikna frá birtingu einkunna.

 

 

 

Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Lára Kristín Jónsdóttir

„Ástćđan fyrir ţví ađ ég kaus ađ leggja stund á nám í hjúkrunarfrćđi er sú ađ mér finnst hjúkrun vera heillandi starf sem opnar fjölmargar dyr. “

Lára Kristín Jónsdóttir hjúkrunarfrćđingur
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf