Háskóli fólksins er verkefni sem hefur verið hrundið af stað við Háskólann á Akureyri til að veita almenningi greiðari aðgang að sérfræðingum skólans. Í gengum þessa síðu er hægt að senda inn fyrirspurnir sem birtast nafnlaust og sérfræðingar Háskólans á Akureyri sjá um að svara þeim. Í háskólanum starfar fólk á sviði auðlindafræða, viðskiptafræða, heilbrigðisvísinda, félagsvísinda, lögspeki og kennarafræða. Almenningur er hvattur til að nýta sér þetta tækifæri og senda inn fyrirspurnir sem varða það ástand sem nú ríkir í þjóðfélaginu.
Einnig þiggjum við með þökkum þær hugmyndir sem fólk hefur um það hvernig háskólinn geti komið til aðstoðar, til dæmis á sviði nýsköpunar. Ef fólk lumar á hugmyndum sem það telur að starfsfólk HA geti unnið með má senda þær inn í gegnum fyrirspurnarkerfið. Þegar hefur farið fram mikil vinna á sviði nýsköpunar og afraksturinn má sjá hér til hliðar undir nýsköpunarhugmyndir. Vinna er þegar hafin við það að þróa hugmyndirnar. Sumar eru komnar langt á leið, aðrar skemur. Við hvetjum einnig starfsfólk háskólans að halda uppteknum hætti og senda inn fleiri nýsköpunarhugmyndir.
Til stendur að bjóða upp á fyrirlestra með sérfræðingum háskólans í miðbæ Akureyrar einu sinni í viku fram til jóla. Þessir fyrirlestrar verða auglýstir hér á síðunni. Einnig verða hér birtar fróðlegar greinar eftir fræðimenn háskólans og hafa sumar þegar birst á síðum dagblaðanna.
Það er von þeirra sem að verkefninu standa að almenningur verði einhvers vísari og geti notfært sér þessa þjónustu sem háskólinn býður upp á.


