Spurning um lífeyrissjóđina
Fyrst krónan stendur svona veikt, er þetta þá ekki góður tímapunktur fyrir lífeyrissjóðina að færa sín verðmæti heim? Í hverju gætu þeir fjárfest hér á landi?
Þetta gæti verið góður tímapuntkur fyrir lífeyrissjóðina til að fara úr erlendum eignum, kaupa krónur og ávaxta þær á íslenskum vöxtum. Á Íslandi er hægt að ávaxta krónurnar með samningum við banka eða kaupa íslensk skuldabréf.


