Háskólinn á Akureyri

Stutt lýsing:Markmið verkefnisins er að þróa aðferð byggða á bestu fáanlegu tækni til að

Sérvirk íblöndunarefni

Stutt lýsing:
Markmið verkefnisins er að þróa aðferð byggða á bestu fáanlegu tækni til að framleiða frumgerð af íblöndunarefni fyrir fiskiðnað. Íblöndunarefnið verður að uppistöðu vatnsrofið fiskprótein sem ætlað er að auka próteinmagn og vötnun í fiskflökum (ferskum, frosnum og söltuðum) og þar með nýtingu og arðsemi.
Prótein eru mikilvægur þáttur margra matvæla, sérstaklega á þetta við um ýmsa fiska þar sem prótein eru allt að og jafnvel yfir 95% þurrefnisinnihalds þeirra (ætur hluti). Í mögrum fiskum svo sem þorski og ýsu eru prótein um 18-20% og vatn um 78-80% restin fita og steinefni (1-2%). Prótein hafa fyrst og fremst gildi sem næringarefni en einnig eru prótein eru víða notuð sem íblöndunarefni í matvælaiðnaði til að bæta vinnslueiginleika, útlit, áferð og bragð ýmissa matvæla. Þessi notkun próteina byggir á margvíslegum og fjölbreyttum eiginleikum próteina sem fyrst og fremst ræðst af byggingu þeirra. Fiskprótein eru um margt sérstök en þau hafa engu að síður alla grunneiginleika próteina. Þeir eiginleikar sem gera prótein áhugaverð sem íblöndunarefni eru m.a. að geta aukið seigju, myndað lím, ýrulausnir, froðu, hlaup og bundið vatn og eru þeir tveir síðasttöldu ef til vill mikilvægastir. Það sem ræður eiginleikum próteina er bygging þeirra svo sem fjöldi og röð einstakra amínósýra og svo þrívíddarbygging. Þessir eiginleikar eru viðkvæmir og breytast mikið ef breytingar verða á byggingu próteinsins eða í umhverfinu svo sem við eðlissviptingu og við breytingar á styrk og eðli jóna í umhverfi próteinanna (e.g. pH breytingar).

Samstarfsaðilar: Sero, MarinAgra og RAF

Mannafli: Hægt að bæta við amk 1 manni strax.

Tími: Verkefnið er í gangi. Um er að ræða nýráðningu í 6 mánuði amk frá og með 1 des. nk.

Kostnaður: Launakostnaður í 12 mannmánuðir @ 350 per mmán eða um 2,1 mkr. Annar kostnaður fellur á verkefnið.

Höfundur: Hjörleifur Einarsson prófessor HA
Nemendur

Starfsmenn

Háskólinn á Akureyri
Blar Gulur Hvitur
A A A
Stefán B. Sigurđsson

„Háskólinn á Akureyri veitir nemendum sínum einstakt tćkifćri til ađ taka virkan ţátt í nýsköpun ţekkingar á fjölmörgum sviđum. “

Stefán B. Sigurđsson rektor
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf