Vinsælt er fara helgarferð frá Íslandi til borga í útlöndum. Meira segja frá stað eins og Akureyri hafa verið farnar nokkrar borgarferðir með beinu flugi á hverju hausti undanfarin ár. Þá var gengið hagstætt til að fara í borgarferð frá Íslandi. Nú er staðan gjörbreytt. Nú er hagstætt að koma í borgarferð til Íslands. Hvaða möguleikar eru á því að fá útlendinga til að koma í borgarferð til Íslands um þessar mundir. Hér er sérstaklega átt við ferðir milli staða sem eru utan helstu flugleiða. Ef íbúi í Osló vill skreppa eina helgi til Reykjavíkur er það lítið mál. Beint daglegt flug er á milli staðanna. Hver er hins vegar möguleiki á að fá íbúa í Bergen til að koma í borgarferð til Akureyrar? Að fara slíka ferð með áætlunarflugi er óhemju dýrt og tímafrekt. Það krefst þriggja leggja: Bergen-Osló, Osló-Keflavík og síðan Reykjavík-Akureyri. Þetta er því ekki raunhæft nema með beinu leiguflugi. Er grundvöllur fyrir slíkri borgarferð? Ekki þarf að fjölyrða um efnahagslega þýðingu þess að fá ferðamenn utan háannatíma til að nýta hótelherbergi og fleira sem að öðrum kosti stendur ónotað.
Staða verkefnisins: Á frumstigi en hefur verið rætt lítillega við Rannsóknamiðstöð ferðamála sem hefur rætt við Markaðsskrifstofu Ferðamála á Norðurlandi. Verð á leiguflugi hefur verið lauslega kannað.
Hvað þarf að gera: Kanna verð á leiguflugi frá stöðum svo sem Stavenger, Bergen, Þrándheimi, Þórshöfn og fleiri nálægum borgum. Hvaða flugfélög koma til greina. Flugtæknileg atriði. Hvað er að sækja til Akureyrarsvæðisins? Hvað hefur Akureyrarsvæðið að bjóða? Jarðböð, jarðhita, tónleika, skemmtanalíf, íslenskan mat, aflmesta foss Evrópu, skíði eða eitthvað annað? Er eftirspurn eftir ferðum sem þessari? Það þyrfti helst að kanna á einhvern hátt í viðkomandi borg. Hvar er "brake even" í ferð sem þessari? Er einhver eftirspurn eftir tómum sætum í hina áttina, þ.e. frá Akureyri?
Fjármagns og mannaflaþörf: Aðallega mannafli, einhver/einhverjir þurfa að gefa sér tíma til að skoða viðfangsefnið. Ef ákveðið er að bjóða slíka ferð er fjárhagsleg áhætta tiltölulega lítil, ferðin er ekki farin nema nægur fjöldi kaupi hana. Óafturkræfur kostnaður verður þó alltaf auglýsingarkostnaður. Hann er minni í nefndum borgum en stórborgum.
Fyrir hvaða fólk: Fólk með þekkingu eða áhuga á ferðamálum, markaðsmálum og flugi. Gott væri að sérfræðingur væri með í ráðum.
Hugsanlegir samstarfsaðilar: Ferðamálageirinn á svæðinu: hótel, veitingahús og aðrir, Akureyrarbær, Markaðsskrifstofa ferðamála á Norðurlandi, staðbundnar ferðaskrifstofur.
Tími: Næstu vikur og mánuðir
Jón Þorvaldur Heiðarsson
HA


