Samstarfsaðilar: Mannvit ehf; Prokatin ehf
Mannafli: 1-2
Tími: 2 ár
Kostnaður: 16 milljónir /Mótframlag er til við HA (Jóhann Örlygsson)
Stutt lýsing
Verkefnið er hluti af orkulíftækni sem hefur verið byggð upp við Háskólann á Akureyri (sjá hér að framan). Verkefnið hefur verið í gangi við Háskólann á Akureyri frá árinu 2006 með styrk úr Líftæknineti í auðlindanýtingu og Tækniþróunarsjóði. Í upphafi var ástæðan fyrir því að farið var út í þetta verkefni að athuga þá möguleika sem hitakærar efnafrumbjarga bakteríur sem geta vaxið á vetni hafa. Í ljós kom að margir stofnar sem einangraðir voru gátu einnig vaxið á afoxuðum brennisteins efnasamböndum. Upp úr því var ákveðið að kanna frekar þessa efnaskipta eiginleika og verkefnið "Hreinsun brennisteinsvetnis úr jarðgufugasi" var búið til en verkefnið er styrkt af Tækniþróunarsjóði. Búið er að byggja upp tilrauna-aðstöðu í samvinnu við líftæknifyrirtækið Prokatin og Orkuveitu Reykjavikur þar sem hægt er að kanna brennisteinsefnaskipti hitakærra baktería beint á jarðgufugasinu. Einn meistaranemandi er útskrifaður úr þessu verkefni (2008) en hann var á launum í sínu námi og samanlagt eru um 4-5 ársverk sem hafa skapast í kringum þetta verkefni en nokkrir starfsmenn hafa unnið í verkefninu sem sumarvinnu. Augljós samlegðaráhrif eru að tengja hér saman stærstu verkfræðistofu landsins og framsækið líftæknifyrirtæki við háskóla á landsbyggðinni í rannsóknum og þróunarvinnu á verðmætasköpun og lífhreinsun. Undirritaður telur að fjöldi sprota (spin off) verkefna gætu skapast í kringum þetta verkefni í náinni framtíð sem gæti verði bæði atvinnu- og verðmætaskapandi. Verkefnið er einnig mjög umhverfisvænt þar sem þær bakteríur sem um ræðir brjóta ekki eingöngu niður brennisteins efnasambönd heldur binda þær einnig koltvísýring sem fyrirfinnst í jarðgufugasinu. Eitt sprota verkefni úr þessu gæti því verið að hreinsa upp jarðgufugas með áherslu á að minnka koltvísýrings mengun frá jarðvarmavirkjunum og annarri stóriðju.
Hugmyndasmiður: Jóhann Örlygsson (HA)/Ásgeir Ívarsson (Mannvit)